Bandaríkin aðvara N-Kóreu

Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er ekki ánægð með kjarnorkutilraunir N-Kóreumanna.
Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, er ekki ánægð með kjarnorkutilraunir N-Kóreumanna. Reuters

Bandaríkjastjórn íhugar nú að setja Norður-Kóreu aftur á lista yfir þjóðir sem styðja hryðjuverk. Þetta sagði Hillary Clinton, utanríkisráðherra Bandaríkjanna.

Nafn Norður-Kóreu var fjarlægt í október sl. í kjölfar þess að þarlend stjórnvöld hófu að taka kjarnkljúf í sundur. Þau hafa hins vegar framkvæmt nokkrar kjarnorkutilraunir síðan þá.

Clinton sagði í samtali við bandarísku fréttastöðina ABC að aðgerðir Norður-Kóreumanna leiði til þess að Bandaríkjastjórn íhugi að endurskoða afstöðu sína í málinu.

Þá hefur einn af sonum Kim Jong-il sagt að bróðir hann verði mögulega útefndur sem arftaki föður síns.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert