Engin brögð í tafli í Íran

Mahmoud Ahmadinejad opnaði nýja verksmiðju í Íran í morgun. stækka

Mahmoud Ahmadinejad opnaði nýja verksmiðju í Íran í morgun. Reuters

Svonefndt verndarráð, sem hefur yfirumsjón með kosningum í Íran, sagði í dag að engar vísbendingar væru um kosningasvik í forsetakosningum, sem fóru fram í landinu um miðjan mánuðinn. „Þetta voru hreinustu kosningar sem farið hafa fram," sagði talsmaður ráðsins.

Ráðið hefur undanfarna 10 daga farið yfir framkvæmd  kosninganna og talsmaður þess, Abbasali Kadkhodai, sagði við fréttastofuna Irna í morgun, að engar vísbendingar hefðu fundist um að rangt hafi verið haft við.

Mahmoud Amadinejad var lýstur sigurvegari kosninganna en Mir Hossein Mousavi, helsti keppinautur hans og leiðtogi stjórnarandstöðunnar, hefur fullyrt að stjórnvöld hafi hagrætt niðurstöðunni. Hundruð þúsunda manna hafa tekið þátt í mótmælafundum gegn kosningaúrslitunum. 

Utanríkisráðherrar G8 ríkjanna, sem nú sitja á fundi í Trieste á Ítalíu, vinna að því að koma sér saman um sameiginlega yfirlýsingu vegna ástandsins í Íran. Franco Frattini, utanríkisráðherra Ítalíu, segir að í yfirlýsingunni verði ofbeldi og kúgun fordæmd. 

Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússalands, hefur þó varað við því að Íran verði einagrað á alþjóðavettvangi vegna málsins. Yfirvöld í Íran hafa ítrekað sakað yfirvöld á Vesturlöndum um að ýta undir spennu í landinu í kjölfar kosninganna þar þann 12. júní.

Þá hafa þau brugðist sérlega hart við gagnrýni yfirvalda í  Bretlandi og Bandaríkjunum á aðgerðir yfirvalda gegn mótmælendum í Íran.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Það er víðar en á Íslandi dýrt að fyll'ann.

Bensínið aldrei dýrara í Danmörku

18:31 Það hefur aldrei verið jafn dýrt að fylla bensíntankinn í Danmörku og í dag er verðið á lítrann fór í 12,99 krónur eða 284,16 íslenskar krónur. Í Noregi fór verðið í 14,83 krónur, eða rúmar 315 íslenskar krónur. Meira »
Frá Grænlandi.

Búið að handtaka árásarmanninn

16:47 Íbúar í þorpinu Nutaarmiut á vesturströnd Grænlands eru harmi slegnir eftir að maður skaut þrjá til bana og særði tvo lífshættulega. Maðurinn er nú í haldi lögreglu. Meira »

Dvínandi vonir Rúmena og Búlgara

16:36 Vonir stjórnvalda í Rúmeníu og Búlgaríu um að geta orðið aðilar að Schengen-samstarfinu innan skamms dvínuðu í dag þegar Evrópusambandið sendi frá sér skýrslu þar sem ríkisstjórnirnar tvær eru hvattar til þess að grípa til frekari aðgerða gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi. Meira »

Fjölgar mest í Kanada

Fáni Kanada.
15:58 Mannfjöldi hefur aukist mest í Kanada af átta stærstu iðnríkjum heimsins (G8 ríkjunum) á síðasta áratug. Er það þakkað fjölda innflytjenda og aukinni frjósemi samkvæmt manntalsgögnum sem birt voru í dag og AFP fréttastofan greinir frá. Meira »

Sendi 11 ára nemanda sínum ástarbréf

Foreldrar mótmæla við skóla í Los Angeles og krefjast þess m.a. að öryggismyndavélar verði settar ...
15:53 Lögreglan í Los Angeles rannsakar nú hvort skólaliði á sextugsaldri hafi sent ellefu ára nemanda sínum ástarbréf. Skólaliðinn kenndi við sama skóla og tveir kennarar sem nú eru í haldi vegna gruns um kynferðisofbeldi gegn nemendum sínum. Meira »

Sjálfsmorðssprengja í Sómalíu

Frá Sómalíu.
16:05 Ellefu létu lífið þegar sprengja sprakk í höfuðborg Sómalíu, Mogadishu, í dag. Um var að ræða sjálfsmorðssprengju, en maður ók bíl, hlöðnum sprengiefnum að forsetahöll landsins og sprengdi þau síðan í loft upp. Meira »

Hinn ástsæli og hinn stórfenglegi myndskeið

Kim Jong-il kemur fyrir almenningssjónir
15:54 Norðurkóreska ríkissjónvarpið sendi út í dag myndskeið þar sem sjá má feðgana Kim Jong-il og son hans og núverandi leiðtoga landsins, Kim Jong-un, þar sem þeir virða fyrir sér ýmsar hernaðaræfingar. Meira »

Þrír myrtir á Grænlandi

15:07 Þrír menn voru myrtir í Nutaarmiut sem er nærri bænum Upernavik á vesturströnd Grænlands í dag. Tveir aðrir eru alvarlega sárir eftir árásina. Ódæðismaðurinn skaut mennina. Meira »

Atvinnuleysi eykst

Starfsmaður í verslunarmiðstöð í Swiss. Atvinnuleysi þar í landi hækkaði um 0,1% á milli mánaða.
14:59 Atvinnuleysi í Sviss mældist 3,4% í janúar í samanburði við 3,3% í desember samkvæmt opinberum tölum sem voru opinberaðar í dag. Í enda janúarmánaðar voru 134.317 manns atvinnulausir í Sviss, sem er hækkun um 3.655 segir starfsmaður Seco, efnahagsskrifstofu landsins. Meira »

Methiti á Svalbarða

Frá Longyearbyen á Svalbarða.
14:27 Á meðan frosthörkur geisa víðast um Evrópu er methiti á Svalbarða. Í dag mældist hitinn sjö stig og hefur aldrei verið hærri í febrúar. Meira »

Neyðarhjálp með þyrlum í Bosníu

14:50 Stjórnvöld í Bosníu hafa sent matvæli og lyf með þyrlum til þorpa í Bosníu sem eru innilokuð vegna snjóa en allt hefur verið á kafi í snjó þar í tólf daga. Meira »

Svaf hjá nemanda en sleppur við fangelsi

14:13 Breskur kennari sem átti í kynferðissambandi við 16 ára nemanda sinn sleppur við fangelsisvist vegna málsins vegna þess að nemandinn leitaði sjálfur eftir sambandi við hann og gerði sér far um að ögra honum kynferðislega samkvæmt fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph. Meira »

Allt á kafi í snjó myndskeið

Snjóstormur hrellir Japana
14:11 Snjókoma veldur vandræðum í Japan í kuldakasti sem nú gengur yfir landið með tilheyrandi ofankomu, sem stefnir í að slá öll met. Meira »

Kunna ekki að bregðast við barnaníði

Fjögurra daga ráðstefna stendur nú yfir í Vatíkaninu um hvernig bæta megi viðbrögð við barnaníði.
13:10 Leiðtogar kaþólsku kirkjunnar hafa „ekki hugmynd" um hvernig þeir eigi að bregðast við barnaníði presta í Brasilíu, þar sem meira umburðaryndi gagnvart barnaníði er bundið í menninguna, miðað við Vestræn lönd. Þetta segir brasilískur sálfræðingur. Meira »

Linnulausar árásir í Homs

Frá borginni Homs í Sýrlandi.
12:51 Navi Pillay yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, biðlaði til alþjóðasamfélagsins í morgun til að vernda óbreytta borgara í Sýrlandi. Borgin Homs í Sýrlandi er undir linnulausum árásum hers landsins. Meira »

Ástralía á kafi í vatni myndskeið

Ástralía á kafi í vatni
14:00 Vatnsyfirborð heldur áfram að hækka í Queensland-fylki í Ástralíu, en þar hafa verið mikil flóð að undanförnu vegna mikilla rigninga. Meira en 2.000 manns voru fluttir af heimilum sínum síðustu helgi og hafa íbúar svæðisins þungar áhyggjur. Meira »

Listaverk fyrir 1.407 milljarða

Mynd Qi Baishi af erni á furutré
13:03 Alls seldust listaverk fyrir 11,5 milljarða Bandaríkjadala, 1.407 milljarða króna, á listaverkauppboðum í heiminum á síðasta ári. Meira »

Facebooksíða Breivik enn lokuð

Anders Behring Breivik.
11:53 Norska lögreglan hefur ítrekað reynt að fá aðgang að facebooksíðu norska fjöldamorðingjans Andrers Behrings Breivik, en án árangurs. Breivik mun hafa átt um eitt þúsund vini á samskiptasíðunni. Facebook-fyrirtækið hefur ekki veitt þennan aðgang á þeirri forsendu að þar sé unnið samkvæmt ströngustu reglum um persónuvernd. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Lister TS1 Rafstöð
Til sölu 3.7 Kw Lister rafstöð nýupptekin með nýjum stjórnbúnaði, árs ábyrgð. He...
SUMARHÚS - GESTAHÚS
Sumarhús - Gestahús - Breytingar O  Framleiðum stórglæsileg sumarhús â€...
Ökukennsla - Akstursmat - Endurtökupróf
Kenni á Mercedes Benz C180, frábæran kennslubíl. Renta ehf. ökukennsla - Eiríkur...
BeyerDynamic - www.NLH.is - gæða vörur
Eitt elsta og mest viðurkennda vörumerki í hljóðnemum og heyrntólum er hjá NLH. ...
 
Bókaveisla

Bókaveisla Hinni landsfrægu og margrómu...
Námskeið héraðsdómslögmanna

Námskeið til undirbúnings prófi til...
Stúkan glitnir
Félagsstarf
l GLITNIR 6012020819 III ...
Landsst.
Félagsstarf
Landsst. 6012020219 VIII...