Sjö manna fjölskylda bundin og rænd

mbl.is/Scanpix

Tveir hettuklæddir menn bundu og rændu sjö manna fjölskyldu í Sørumsand í Noregi í morgun. Annar maðurinn var handtekinn á lestarstöð nálægt ránsstaðnum en hins er leitað.

Fjölskyldan býr í íbúð fyrir ofan veitingastað sem hún rekur. Ráðist var á húsfreyjuna þegar hún fór út með ruslið klukkan 7.30 í morgun að staðartíma. Það var ekki fyrr en klukkan 8.40 sem ræningjarnir yfirgáfu húsið en þá höfðu þeir bundið alla fjölskylduna og rænt. Börnin eru á aldrinum sjö til 17 ára.

Lögreglan fékk tilkynningu um ránið þremur mínútum eftir að ræningjarnir hurfu á brott og var það eitt barnanna sem lét vita.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert