Varnarmálaráðherra Danmerkur hótar afsögn

Søren Gade, varnarmálaráðherra Danmerkur,
Søren Gade, varnarmálaráðherra Danmerkur, mbl.is/Golli

Varnarmálaráðherra Danmerkur, Søren Gade,  hótaði að segja af sér í dag eftir að yfirmaður í danska hernum þýddi umdeilda danska bók, sem fjallar um danska herinn í Afganistan, á arabísku. Hann segist ekki bera traust til yfirmanna hersins.

Danski herinn hefur farið fram á að bókin verði bönnuð, því hún geti skaðað öryggi hermanna í landinu. Danskur hermaður, sem tilheyrði sérsveit danskra hermanna í Afganistan, skrifar bókina.

Dómstóll í Danmörku hefur neitað að verða við kröfu hersins þar sem þegar sé búið að birta hluta úr bókinni á netinu og danskt dagblað hafi birt bókina í heild sinni.

Nú hefur komið í ljós að yfirmaður hjá tæknideild hersins hafi sent danska dagblaðinu Berlingske Tidende bókina í arabískri þýðingu, og sett textann á netið. Gade segir þetta hafa verið hnífstungu í bakið, en hermanninum hefur verið vikið úr starfi.

Gade sagði við blaðamenn að hann treysti ekki lengur æðstu yfirmönnum hersins. Hann átti fund með utanríkismálanefnd danska þingsins um málið.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert