Opinberar skuldir vaxa hratt á Ítalíu

Skuldir hins opinbera eru svimandi háar á Ítalíu
Skuldir hins opinbera eru svimandi háar á Ítalíu Reuters

Skuldir hins opinbera námu 1.758 milljörðum evra á Ítalíu í ágúst og hafa aldrei verið jafn miklar, samkvæmt upplýsingum frá Seðlabanka Ítalíu. Skuldir hins opinbera sem hlutfall af vergri landsframleiðslu eru hvergi jafn miklar í ríkjum Evrópusambandsins og á Ítalíu. Áætlanir ríkissjóðs gera ráð fyrir að þær verði 115,1% í ár og 117,3% á næsta ári.

Samkvæmt nýrri skýrslu seðlabankans hafa opinberar skuldir aukist um 4,78 milljarða evra frá því í maí sem þýðir að skuldaaukningin er 1,6 milljarðar evra á mánuði á síðasta ársfjórðungi eða um 400 milljónir evra á viku.

Í ágúst í fyrra námu opinberar skuldir ítalska ríkisins 1.666,6 milljörðum evra.

Samkvæmt reglum Evrópusambandsins má fjárlagahallinn ekki fara yfir 3% af landsframleiðslu. Ríkisstjórn Ítalíu gerir ráð fyrir því að fjárlagahallinn verði 5,3% af landsframleiðslu í ár og 5% árið 2010.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert