Kapítalisminn víða í vörn

Mikil óánægja er með kapítalismann víða um heim nú þegar 20 ár eru liðin frá falli Berlínarmúrsins, ef marka má skoðanakönnun sem birt var í gær.

Aðeins 11% aðspurðra í 27 löndum sögðust telja að frjálsa markaðshagkerfið virkaði vel, en 51% taldi að hægt yrði að leysa vandamál kapítalismans með umbótum og meiri opinberum afskiptum.

Aðeins í Bandaríkjunum (25%) og Pakistan (21%) töldu fleiri en fimmtungur aðspurðra að kapítalisminn virkaði vel í núverandi mynd, ef marka má könnunina sem var gerð fyrir Heimsþjónustu BBC.

Að meðaltali sögðu 23% aðspurðra að kapítalisminn væri svo gallaður að honum væri ekki við bjargandi og koma þyrfti upp nýju hagkerfi – 43% aðspurðra í Frakklandi, 38% í Mexíkó, 35% í Brasilíu og 31% í Úkraínu.
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:
Nánar um málið
í Morgunblaðinu
Áskrifendur:

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert