Kennedy má ekki ganga til altaris

Patrick Kennedy

Patrick Kennedy Reuters

Bandaríski þingmaðurinn Patrick Kennedy, sem er af einni frægustu rómversk kaþólsku ætt Bandaríkjanna segir að rómversk kaþólski biskupinn Thomas Tobin hafi meinað honum að ganga til altaris, vegna stuðnings síns við réttinn til fóstureyðinga.

Segir Kennedy biskupinn hafa bannað sér að ganga til altaris og hafi jafnframt fyrirskipað öðrum prestum í umdæmi sínu að leyfa Kennedy ekki að ganga til altaris. Hafi biskupinn skýrt ákvörðunina þannig að Kennedy ástundaði kaþólsku ekki nægilega vel og vísaði til opinberra afstöðu hans til fóstureyðinga.

Kennedy hefur ekki skýrt þessi samskipti sín og biskups frekar, né svarað hvort hann hafi farið að skipun biskups. Hins vegar segir í yfirlýsingu frá Tobin biskup að hann hafi ekki tengt umrædd málefni altarisgöngu, né rætt við presta um altarisgöngur í samhengi við opinbera starfsmenn. Biskup var ekki tilbúinn til að ræða málið frekar við AP fréttastofuna.

Samkvæmt lögum kirkjunnar er biskupi heimilt að banna Kennedy að ganga til altaris í sínu umdæmi en hann getur hins vegar  ekki meinað honum það í öðrum fylkjum. Fræðilega séð gæti hann áfrýjað ákvörðun biskups til Vatikansins en samkvæmt heimildum AP er valdapýramídinn innan kaþólsku kirkjunnar þannig að ólíklegt sé að ákvörðun biskups verði ógilt.

Fóstureyðingar eru mikið deilumál í Bandaríkjunum.  Deilur mannanna hófust í október þegar Kennedy gagnrýndi bandaríska biskupa fyrir að standa gegn breytingum á heilbrigðiskerfinu, nema auknar hömlur væru settar á fóstureyðingar sem væru greiddar af ríkjunum. Deilur þeirra mögnuðust og hefur biskupinn jafnvel sent þingmanninum bréf, þar sem hann skilgreinir hvað það er að vera kaþólskur.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Flugumferðarstjórar að störfum

Tafir á flugi í Portúgal

10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »
Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að renna barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Vill skera upp herör gegn mafíunni

Mario Monti, forsætisráðherra Ítalíu.
Í gær, 19:24 „Ítalir þurfa að berjast miskunnarlaust gegn mafíunni.“ Þetta sagði forsætisráðherra Ítalíu, Mario Monti, í borginni Palermo á Sikiley í dag þar sem þúsundir komu saman til að minnast dómarans Giovanni Falcone sem myrtur var af ítölsku mafíunni. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Segir nektardansstaði stuðla að kynferðisafbrotum

Mynd úr safni.
Í gær, 17:11 Lögreglustjóri breska ferðamannabæjarins Newquay hefur valdið miklu fjaðrafoki með fullyrðingum sínum þess efnis að nektardansstaðir í bænum hafi „stuðlað“ að 14 nauðgunum og 34 kynferðisafbrotum á síðustu tveimur árum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Standard Poodle hvolpar til sölu
Tilbúnir til afhendingar, ættbók frá HRFÍ, líf og sjúkdóma trygging frá VÍS. Fre...
Hyundai Tucson til sölu
Til sölu Hyundai Tucson nýskr. 29.10.2004. Sjálfskiptur, dráttarkrókur, bensín, ...
Lítill ljósabekkur
Til sölu þessi krúttlegi ljósabekkur Orginal philips uva. 8 perur. Upplýsingar í...
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD
TIL SÖLU SUBARU FORESTER 4WD ÁRG. 3/2003 EKINN. 175 Þ.KM. SJÁLFSKIPTUR. HEIL...
 
Deiliskipulagstillaga á grundartanga

Deiliskipulagstillaga á Grundartang...
Kennarar og leikskólakennarar
Grunn-/framhaldsskóla
Hafralækjarskóli og Litlulaugaskóli í Þ...
Opinn fundur
Félagsstarf
Félag sjálfstæð...
12836 fellahverfi - útboð

út­boð Reykja­víkur­bor­g Innka­upa­...