Allt á kafi í snjó

Það snjóar og snjóar
Það snjóar og snjóar Reuters

Miklar tafir hafa orðið á samgöngum í Bretlandi vegna mikillar snjókomu. Víða í Evrópu hefur snjóað mikið undanfarna daga og mátti víða sjá bæði börn og fullorðna leika sér í snjónum í París á meðan aðrir bölvuðu því að komast hvergi vegna snjókomunnar.

Í nágrenni Lundúna og víðar á Englandi eyddu fjölmargir nóttinni í bifreiðum sínum og fresta varð flugi á Gatwick og Luton flugvöllum. Eins urðu miklar tafir á lestasamgöngum.

Hefur verið mikið annríki hjá lögreglu og björgunarsveitum við að aðstoða fólk við að komast leiðar sinnar en spáð er áframhaldandi snjókomu.

Allt á kafi í snjó á Spáni
Allt á kafi í snjó á Spáni Reuters
Frá París í gær
Frá París í gær Reuters
Eiffel turninn skartaði sínu fegursta í snjónum í París í …
Eiffel turninn skartaði sínu fegursta í snjónum í París í gær Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert