76 blaðamenn drepnir á árinu
Dulbúnir aðgerðarsinnar mótmæla brotum á tjáningarfrelsi í Rússlandi. SHAMIL ZHUMATOV
Alls voru 76 blaðamenn drepnir vegna starfs síns á árinu 2009, 16 fleiri en í fyrra að sögn fjölmiðlasamtakanna Blaðamenn án landamæra.
„Stríð og kosningar hafa verið mesta ógnin við blaðamenn á árinu 2009," segir Jean-Francois Julliard, aðalritar samtakanna. „Ofbeldi sem framið er gegn blaðamönnum fyrir og eftir kosningar hefur verið sérstaklega áberandi þetta árið í löndum þar sem lýðræðið er veikt."
Mannránum á fjölmiðlafólki fjölgaði líka árið 2009 og voru alls 33, samanborið við 29 rán árið 2008. 1.456 blaðamenn urðu fyrir líkamsárásum eða hótunum, en árið 2008 voru þeir 929, og fleiri bloggarar urðu fyrir staðfestri ritskoðun (115 árið 2009 en 59 árið 2008).
Hefting tjáningarfrelsisins hefur aukist á internetinu því fjöldi landa þar sem ritskoðun hefur áhrif hefur tvöfaldast á milli ára, úr 37 löndum árið 2008 í 60 árið 2009. „Í hvert skipti sem internetið eða hvers kyns nýr miðill (s.s. farsímar og samskiptasíður) spila stórt hlutverk í að koma upplýsingum á framfæri þá eru afleiðingarnar alvarlegar," segir Julliard.
Hann bætir því við að árið 2009 hafi verið verulegt áhyggjuefni hversu mörgum blaðamönnum hafi verið vísað úr landi þar sem ástandið er viðkvæmt, í löndum eins og Íran og Sri Lanka.
„Yfirvöld í þessum löndum hafa augljóslega skilið að með því að senda blaðamenn burt hafa þeir dregið úr útbreiðslu upplýsinga og gagnrýni gegn þeim."
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Miðvikudagur, 15. desember 2010, Erlent 42 blaðamenn létust vegna starfs síns á árinu
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Erlent Fékk 16 milljóna dala bónus 2009
- Þriðjudagur, 30. mars 2010, Erlent Ætluðu að berjast gegn andkristi
- Föstudagur, 5. febrúar 2010, Erlent Gyðingahatur aldrei meira í Bretlandi
- Fimmtudagur, 24. desember 2009, Erlent Mannskætt ferjuslys á Filippseyjum
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju


































