Fréttaskýring: Brown í kröppum dansi

Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands stækka

Gordon Brown forsætisráðherra Bretlands Reuters

Forsætisráðherra Bretlands, Gordon Brown lýsir pólitísku samsæri gegn sér sem heimskulegu og segist leita eftir innblæstri til Nelson Mandela, fyrrum forseta Suður-Afríku, fyrir komandi þingkosningar.

Þrátt fyrir að tilraun tveggja fyrrverandi ráðherra Verkamannaflokksins hafi runnið út í sandinn um að láta þingflokk Verkamannaflokksins kjósa í leynilegri kosningu um framtíð Brown sem leiðtoga flokksins þá er synd að segja að lognmolla ríki í kringum forsætisráðherrann. Í dag hvatti fyrrverandi framkvæmdastjóri Verkamannaflokksins, Peter Watt, Brown til þess að hætta sem leiðtogi flokksins.

En Brown ætlar ekki að gefast upp og í dag birtist viðtal við hann í vinsælasta slúðurblaði Bretlands, News of the World. Þar er haft eftir honum að hann ætli ekki að eyða tíma í að takast á við hluti sem að hans mati eru heimskulegir.

Hann segist vera staðráðin í því að sitja heilt kjörtímabil til viðbótar fari flokkurinn með sigur af hólmi í kosningunum sem þurfa að fara fram í vor.

Brown upplýsti í viðtalinu að hann hefði fengið innblástur frá Mandela í jólafríinu er hann sá kvikmyndina Invictus sem meðal annars fjallar um Mandela og lok aðskilnaðarstefnunnar í S-Afríku.

„Kvikmyndin um Nelson Mandela fjallar um staðfestu og það er það sem ég snýst um," segir Brown í viðtalinu. Hann hefur einnig verið að lesa ljóð William Ernest Henley en titill myndarinnar er tekinn úr ljóði hans. 

Hann segist vera í góðu sambandi við forvera sinn í starfi, Tony Blair, og segir að Blair sé einn besti forsætisráðherra sem Bretar hafi átt. „Við Tony ræðum oft saman," segir Brown og bætir við að hann fari að ráðleggingum Blair líkt og hann hafi alltaf gert. 

Þess er vænst að Blair gefi skýrslu fyrir bresku nefndinni sem rannsakar Íraksstríðið og er óttast að vitnisburður hans geti skaðað Verkamannaflokkinn enn frekar fyrir væntanlegar kosningar. 

Í grein sem birtist í Mail on Sunday í dag hvetur Watt Brown til þess að segja af sér í þágu flokksins. „Gordon stórmenni í stjórnmálum en skortir tilfinningalegt innsæi sem er nauðsynlegt fyrir leiðtoga nútímans."

Með blaðinu fylgir með úrdráttur úr endurminningum Watt en þar fær Brown heldur betur á baukinn. Segir hann að allt hafi gengið á afturfótunum síðan Brown flutti inn í  Downing stræti.

En þrátt fyrir þetta þá virðist stuðningur við Verkamannaflokkinn hafa aukist lítillega að undanförnu ef marka má könnun sem birt er í Sunday Telegraph. Þar fær Íhaldsflokkurinn áfram 40% en Verkamannaflokkurinn 30% sem er 1% meira heldur en í síðustu könnun. 

41% kjósenda telja að Verkamannaflokkurinn væri betur kominn án Brown en 35% sögðu flokkinn standa betur með Brown í forystu.

David Cameron, formaður Íhaldsflokksins,  sagði í þættinum BBC Sunday að Bretar þyrftu á kosningum að halda sem fyrst.

Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands

Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Bretlands Reuters

Nelson Mandela fyrrum forseti Suður-Afríku

Nelson Mandela fyrrum forseti Suður-Afríku Reuters

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Fjölskipaður dómur dæmir í málinu gegn Anders Behring Breivik.

Dómarar vilja skýr svör um sakhæfi Breivik

11:41 Dómararnir í máli Anders Behring Breivik hafa sent bréf til úrskurðarnefndar í réttarlæknisfræðum þar sem þess er óskað að nefndin gefi skýrari svör um hvort hún samþykki síðara geðmatið sem gert var á Breivik, en niðurstaða þess var að hann sé sakhæfur. Meira »
Flugumferðarstjórar að störfum

Tafir á flugi í Portúgal

10:00 Talið er að verkfall flugumferðarstjóra í Portúgal muni hafa áhrif á um 500 flugferðir um flugvelli landsins í dag og á morgun. Meira »

Eiturlyfjabarón framseldur til Bandaríkjanna

11:24 Yfirvöld í Mexíkó hafa framselt eiturlyfjabaróninn Sergio Villarreal, sem er þekktur undir heitinu El Grande eða sá stóri, til Bandaríkjanna þar sem hann er ákærður fyrir eiturlyfjasmygl og peningaþvætti. Meira »

Harðir eftirskjálftar á Ítalíu

Fólk í neyðarskýlum í Finale Emilia.
07:50 Tveir harðir eftirskjálftar riðu yfir norðausturhluta Ítalíu í gærkvöldi. Þusti skelfingu lostið fólk út á götur en einhverjar skemmdir urðu á húsum í skjálftunum. Meira »

Víðtækt verkfall í Noregi

Frá Ósló
07:16 Talið er að um 25 þúsund opinberir starfsmenn taki þátt í verkfalli sem hófst í Noregi í morgun eftir að viðræður milli starfsmanna ríkis og bæja við hið opinbera runnu út í sandinn í nótt. Meira »

Vonast eftir samkomulagi um hvalveiðar

08:16 Utanríkisráðherra Nýja-Sjálands, Murray McCully, segist vonast til þess að samkomulag náist um hvalveiðar Japana á næstu árum þrátt fyrir að deilur þar að lútandi hafi staðið yfir í mörg ár. Meira »

Egyptar kjósa sér forseta

Fólk beið eftir að fá að kjósa í morgun
07:32 Kosningum var framhaldið í Egyptalandi í dag en í gær hófust forsetakosningar í landinu. Er þetta í fyrsta sinn sem Egyptar fá tækifæri til að kjósa sér leiðtoga með lýðræðislegum hætti. Meira »

400 handteknir í mótmælum

07:10 Kanadíska lögreglan handtók um fjögur hundruð manns í Montreal í nótt en fólkið tók þátt í mótmælum námsmanna í borginni. Mótmælendur köstuðu grjóti í lögreglu en víðtæk mótmæli námsmanna hafa sett svip sinn á Quebec ríki undanfarna mánuði. Meira »

Fellibylurinn Bud nálgast land

Mynd úr safni
06:36 Von er á fyrsta fellibyl tímabilsins, Bud, yfir suðvesturströnd Mexíkó, samkvæmt upplýsingum frá fellibyljamiðstöð Bandaríkjanna. Meira »

Evruskuldabréf aftur á dagskrá

Olli Rehn, yfirmaður efnahagsmála í framkvæmdastjórn ESB.
Í gær, 23:50 Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins ætlar innan skamms að setja fram áætlanir um að breyta sambandinu í efnahagslegt og pólitískt samband sem sé nauðsynleg forsenda þess að hægt verði að setja á laggirnar svonefnd evruskuldabréf. Meira »

Systur handteknar fyrir barnaníð

06:22 Tvær ástralskar ungar konur, sem segjast vera systur, voru handteknar í dag grunaðar um að reka barnavændishring í Sydney. Eiga þær að hafa selt út barnungar stúlkur til karla en einhverjar stúlknanna voru heimilislausar. Meira »

Gróft einelti í sænskum heimavistarskóla

Lundsberg heimavistarskólinn í Svíþjóð.
Í gær, 23:20 Fyrrverandi nemendur við virtan heimavistarskóla í Svíþjóð, Lundsberg, sögðu frá reynslu sinni af veru í skólanum í fréttaskýringaþætti í sænska ríkissjónvarpinu sem sýndur var í kvöld en þeir urðu fyrir grófu einelti þegar þeir voru stunduðu nám við hann. Meira »

Hótuðu að halda barninu eftir

Frá Aþenu, höfuðborg Grikklands. Úr myndasafni.
Í gær, 22:41 „Gríska þjóðin hefur lagt mikið á sig. En hún þarf að gera meira,“ sagði Cristine Lagarde, framkvæmdastjóri Alþjóðagjaldeyrissjóðsins, í samtali við breska ríkisútvarpið BBC. Meira »

Hælisleitendur í hungurverkfalli

Stefánskirkjan á Norðurbrú í Kaupmannahöfn þar sem fjöldi hælisleitanda í hungurverkfalli hafast við.
Í gær, 21:15 Á sjöunda tug hælisleitenda í Danmörku er í hungurverkfalli og þeim fjölgar stöðugt. Fólkið er búsett í flóttamannamiðstöðvum víða um landið og þeir sem lengst hafa svelt sig hafa ekkert borðað í þrjár vikur. Stór hópur þeirra heldur til í Stefánskirkjunni á Norðurbrú í Kaupmannahöfn. Meira »

Undirbúi sig fyrir grískt brotthvarf

Í gær, 20:12 Forystumönnum evruríkja hefur verið ráðlagt af háttsettum embættismönnum hjá Evrópusambandinu að undirbúa sig fyrir það ef til þess kemur að Grikkland yfirgefi evrusvæðið. Meira »

Olía alls ekki að ganga til þurrðar

Norskur olíuborpallur á Snorra-svæðinu í Norðursjó.
Í gær, 21:57 Ekkert land í heiminum dældi upp meiri olíu og gasi í fyrra en Norðmenn. Norska ríkisolíufélagið Statoil er það fyrirtæki heims sem vinnur mest magn olíu. Meira »

Sprengjukona ekki ákærð

Flugvélar US Airways.
Í gær, 20:49 Frönsk kona, sem fullyrti að hún væri með sprengibúnað græddan í sig er hún var um borð í bandarískri flugvél í gær, verður ekki ákærð fyrir tiltækið. Meira »

Romney lofar minna atvinnuleysi

Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins.
Í gær, 19:57 Mitt Romney, forsetaframbjóðandi Repúblikanaflokksins, lofar því að nái hann kjöri muni atvinnuleysi fara niður í 6%. Hann lofar víðtækum breytingum í viðskiptalífinu og gagnrýnir Obama forseta harðlega fyrir að hafa ekki tekið nægilega vel á málum. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Peugeot 206 XR Présence árgerð 2007
Til sölu mjög góður og fallegur Peugeot árg. 2007 ekinn 75.000 km. Beinskiptur. ...
Góður hrossaskítur í garðinn
Er á höfuðborgarsvæðinu. Þú getur sótt frítt eins og þú vilt, eða ég komið með k...
Glæsilegir meðferðabekkir frá USA
EarthLite bekkir frá USA. Bestu gæði. www.Rikki.is 561 9400...
TOYOTA COROLLA H/B
Toyota Corolla H/B Sol, 01/2004, ekinn 84 þús. Ssk., vindskeið,...
 
Skólastjóri við grandaskóla
Grunn-/framhaldsskóla
Skóla- og frístundasviði Reykjavíkurborg...
Bílar ríkiskaup - tilboð óskast

Tilboð óskast í eftirtaldar bifreiðar og...
Uppgjörsvinna
Skrifstofustörf
Uppgjörsvinna Endurskoðunarskrifstofa au...
Bókari og launafulltrúi
Skrifstofustörf
Samband íSlenSkra Sveitarfélaga Star...