Sarah Palin í sjónvarpið

Sarah Palin.
Sarah Palin. Reuters

Sarah Palin, sem var varaforsetaefni repúblikana við síðustu forsetakosningar í Bandaríkjunum, mun ganga til liðs við Fox News sjónvarpsstöðina. The Washington Post hefur eftir stjórnanda hjá stöðinni að von sé á tilkynningu um þetta.

Palin sagði af sér embætti ríkisstjóra í Alaska síðastliðið sumar og hafa verið vangaveltur um það hvort hún hygði á framboð í næstu forsetakosningum. 

Hún mun koma fram sem álitsgjafi í ýmsum þáttum hjá Fox. Einnig mun hún eiga að stjórna eigin þáttum

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert