Kallaði Rompuy „raka tusku“
Jerzy Buzek, forseti Evrópuþingsins, hefur sektað breska þingmanninn Nigel Farange um nærri 3.000 evrur (525.000 ÍKR) fyrir gífuryrði gegn Herman Van Rompuy, forseta Evrópusambandsins, í þingsal og fyrir að kalla hann „raka tusku“.
„Hann vonaði sannarlega að ég myndi draga í land í dag en það gerði ég ekki,“ sagði Farage, algerlega án nokkurrar iðrunar, í samtali við AFP fréttastofuna að loknum fundi. Hann er helsti talsmaður breska sjálfstæðisflokksins í evrumálum.
Jerzy Buzek, forseti Evrópuþingsins, kallaði Nigel Farage á sinn fund eftir ræðu þess síðarnefnda þegar Van Rompuy kom fyrst fyrir þingið. Buzek kvaðst verja rétt Farage til að vera á öndverðri skoðun um stefnumörkun eða stofnanir Evrópusambandsins.
„Það hins vegar gefur honum ekki leyfi til að móðga persónulega gesti Evrópuþingsins eða landið sem þeir koma frá,“ sagði Buzek. „Framkoma hans við hr. Rompuy var óviðeigandi, óþingleg og móðgangi við virðingu þingsins.“
Farage hefur áður verið gagnrýndur fyrir ræðuhöld sín. Hann hóf ræðu sína á miðvikudaginn var á orðunum: „Ég vil ekki vera dónalegur,“ og hélt áfram í ávarpi sínu til fyrrum forsætisráðherra Belgíu: „En í rauninni hefur þú persónutöfra rakrar tusku og lítur út fyrir að vera lágt settur bankastarfsmaður.
Hver ertu? Ég hef aldrei heyrt á þig minnst, enginn í Evrópu hefur nokkurn tíma heyrt á þig minnst,“ hélt Farage áfram og lýsti Belgíu „sem að mestu leyti svona ekki landi“.
Erlent »
Laugardagur, 26.5.2012
- Fordæma morð á óbreyttum borgurum
- Háaldraður stríðsglæpamaður látinn
- Hertar innflytjendareglur ef evran hrynur
- Skaut af handahófi
- Vill endurvekja egypsku byltinguna
- Gómuðu gengi hjólaþjófa
- Pútín fagnar bróður í anda
-
Lokaæfingar í Bakú
- Jarðsett 20 árum eftir dauðann
- Bakúbúar í startholunum
- Medvedev formaður Sameinaðs Rússlands
- Tveir létust í árás í Finnlandi
- Kennurum voru sýnd kynfæri nemenda
- Segja kjarnorkutilraunir friðsamlegar
- Skothríð í Finnlandi
- Segja fjöldamorð framið í Sýrlandi
- Vill fyrir Mannréttindadómstólinn
- Áframhaldandi mótmæli í Sýrlandi
- Úran í Íran auðugra en talið var
- „Duglegasti“ Eurovision keppandinn
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
- Fær 3.000 ár til að borga skattaskuld
- Starfsmaður Vatíkansins handtekinn
- Þjóðverjar vilja Grikki af evrusvæðinu
- Ferrari innkallar 56 bíla
- Breivik vildi plástur á fingurinn
- Meirihluti Skota andvígur sjálfstæði
- Vill að viðskiptaþvingunum verði aflétt
- Mursi mæti Shafiq
- Fangar ósáttir við óhrein hnífapör
- Tókst að góma flóttamörgæsina 337
- Skaut son sinn og framdi síðar sjálfsvíg
- Veitir fjölskyldunni vonandi einhvern frið
- Meintur fjöldamorðingi í haldi
- Búsáhaldabylting í Quebec
- Stjórnendur Rena dæmdir í fangelsi
-
Bandalag múslíma lýsir yfir sigri
- Hollande í Afganistan
- Jarðskjálfti í Christchurch
- Sýrland
- Skuldavandi Grikklands
- Fjöldamorðin í Útey. Anders Behring Breivik
- Efnahagsvandræði á evrusvæðinu
- Forkosningar Repúblikana 2012
Svipaðar fréttir
- Fimmtudagur, 25. febrúar 2010, Erlent Líkt við blauta tusku
- Laugardagur, 14. nóvember 2009, Erlent Vill Aznar sem forseta ESB
- Þriðjudagur, 14. júlí 2009, Erlent Jerzy Buzek forseti Evrópuþingsins
- Þriðjudagur, 1. júní 2010, Erlent Lýsa áhyggjum af stöðu mannréttindamála í Rússlandi
- Fimmtudagur, 19. nóvember 2009, Erlent Van Rompuy fyrsti forseti ESB
-
Bretar æfa sig fyrir demantsafmælið
-
Segjast ekki bera ábyrgð
-
Lokaæfingar í Bakú
-
Lady Gaga lætur ekki þvinga sig
-
Eurovision keppnin í SingStar
-
Bretar búast til hátíðahalda
-
Handtekin fyrir að mótmæla í Bakú
-
Hjólin fá að snúast að nýju




































