Neitar að hafa myrt sjúklinga

Indverskur skurðlæknir sem starfaði í Ástralíu neitar því að bera ábyrgð á dauða þriggja ástralskra sjúklinga er hann kom fyrir dóm í dag. Hann er ákærður fyrir manndráp og að hafa slasað sjúklinga alvarlega með óþörfum aðgerðum og röngum greiningum á veikindum.

Jayant Patel, 59 ára,  stýrði skurðstofu á ástralska sjúkrahúsinu Bundaberg Base á tímabilinu 2003 - 2005.

Patel var framseldur frá Bandaríkjunum í júlí 2008 vegna málsins.

Að sögn saksóknara létust sjúklingar eða voru limlestir eftir að hafa farið undir hnífinn hjá Patel sem gerði á þeim aðgerðir sem voru óþarfar. Til að mynda hafi hann skorið einn sjúkling upp sem hann greindi með krabbamein en í ljós kom að ekkert amaði að sjúklingnum.

Einn sjúklingur lést eftir að Patel skar hluta iðra hans í burtu án þess að hafa fyrir því að rannsaka hvað olli blæðingum í endaþarmi sjúklingsins, að sögn saksóknara.

Fyrrverandi sjúklingar læknisins fylgdust með réttarhöldunum í dag en að sögn talsmanns þeirra sem kærðu lækninn á sínum tíma fyrir afglöp í starfi þá hefur þetta verið fimm ára erfið barátta. Gert er ráð fyrir að réttarhöldin standi yfir í tíu vikur og að um 160 vitni verði leidd fyrir dómarann. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Bloggað um fréttina

Loka

Erlent »

Fimm ára stúlku var bjargað úr snjóflóðinu en foreldrar hennar létust.

Lítilli stúlku bjargað úr snjóflóði myndskeið

19:28 Að minnsta kosti níu létust í snjóflóði í afskekktu fjallaþorpi í suðurhluta Kósóvó í gær. Björgunarmenn fundu fimm ára stúlku á lífi en foreldrar hennar og ættingjar eru meðal þeirra sem létust. Meira »
Fer The Sun sömu leið og News ff the World?

Murdoch á leið til Bretlands

17:25 Fjölmiðlakóngurinn Rupert Murdoch er væntanlegur til Bretlands í vikunni til að takast á við vaxandi fjölmiðlafár í kringum veldi hans. Fimm blaðamenn dagblaðsins The Sun, sem er í eigu Murdochs, voru handteknir í gær. Meira »

Baða sig í snjónum á vetrarhátíð

Það jafnast ekkert á við það að velta sér upp úr snjónum. Vetrarhátíðin í Quebec ...
17:11 Vetrarhátíðin í Quebec í Kanada er með nokkru öðru sniði en sú íslenska sem stendur yfir um helgina. Meðal dagskrárliða er snjóbað þar sem fólk rífur sig úr hverri spjör og veltir sér upp úr snjónum. Meira »

Byrjað að dæla olíu úr skipinu

Costa Concordia á strandstað við ítölsku eyjuna Giglio.
16:56 Loksins er byrjað að dæla olíu úr skemmtiferðaskipinu Costa Concordia sem strandaði við strendur ítölsku eyjunnar Giglio fyrir mánuði. Meira »

Táragasi beitt í Grikklandi

16:30 Mikil mótmæli eru nú fyrir utan gríska þingið í Aþenu á meðan þingmenn ræða erfiðan niðurskurð í opinberum útgjöldum. Talið er að tugþúsundir mótmælenda séu saman komnar fyrir utan þinghúsið og hefur lögreglan í Aþenu m.a. þurft að beita táragasi til að hafa hemil á ástandinu. Meira »

Heimildarmynd um árásina 1972

Meðlimur hryðjuverkasamtakanna Svarti september í árásinni 1972.
17:10 Eftirlifendur hryðjuverkaárásarinnar á Ólympíuleikunum í Munchen árið 1972 munu koma saman á vettvangi árásarinnar síðar í þessum mánuði en ástæða þess er sú að unnið er að gerð heimildarmyndar um atburðinn. Meira »

Krefjast réttlætis

Giorgio Napolitano, forseti Ítalíu, vottar ættingjum fórnarlamba slyssins samúð sína í Róm í dag.
16:40 Forseti Ítalíu krefst réttlætis fyrir hönd þeirra sem eiga um sárt að binda vegna strands skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Hann vill að allur sannleikurinn um orsakir slyssins verði dreginn fram í dagsljósið. Meira »

Flugvél ráðamanna Kongó fórst

Matata Ponyo, fjármálaráðherra Kongó, er talinn vera lífshættulega slasaður.
16:15 Minnst tveir létust og nokkrir særðust þegar einkaflugvél brotlenti í dag við flugvöllinn í borginni Bukavu í Kongó.   Meira »

Gríska þingið ræðir aðgerðir

14:28 Gríska þingið fundar nú um niðurskurð í opinberum útgjöldum en hann er sagður nauðsynleg forsenda þess að Grikkir hljóti 130 milljarða evra neyðarlán frá Evrópusambandinu og Alþjóðagjaldeyrissjóðnum. Meira »

Hvatti börn sín til betra lífs

Osama bin Laden.
11:34 Hermdarverkamaðurinn Osama bin Laden sem ráðinn var af dögum af bandarískum sérsveitarmönnum í maí á síðasta ári hvatti börn sín til að mennta sig og búa í Bandaríkjunum eða Evrópu. Jafnframt bað hann þau um að feta ekki sömu slóð og hann sjálfur. Þetta kemur fram í viðtali við mág hans í Sunday Times. Meira »

Ráðist gegn PKK í Írak

Tyrkneskir herbílar skammt frá landamærum Tyrklands og Íraks.
13:10 Tyrkneski flugherinn gerði loftárásir á skotmörk í norðurhluta Íraks í morgun. Árásirnar beindust gegn liðsmönnum PKK, Verkamannaflokki Kúrda, en þau samtök eru skilgreind sem hryðjuverkasamtök. Meira »

Fréttaflutningur aðeins dropi í hafið myndskeið

Sýrlenskur flóttamaður ber stjórnvöldum söguna illa
Í gær, 22:00 Sýrlenskir flóttamenn segja að fréttaflutningur af ástandinu í landinu sé aðeins dropi í hafið, svo slæmt sé ástandið. Töluverður fjöldi af myndböndum hefur borist af ofbeldi hersins gegn almennum borgunum, en ekki hefur verið hægt að staðfesta að myndböndin séu raunsönn. Meira »

Tekið á móti Suu Kyi sem rokkstjörnu myndskeið

Suu Kyi tekið sem rokkstjörnu
í gær Þúsundir þyrptust út á götu í Búrma til að taka á móti leiðtoga stjórnarandstöðunnar í Búrma, Aung San Suu Kyi. Erlendir fjölmiðlar greina frá að henni hafi verið tekið eins og rokkstjörnu, þvílíkt voru fagnaðarlætin. Meira »

Fjöldamótmæli vegna ACTA

Mótmæli voru víðs vegar um Evrópu í dag.
í gær Tugir þúsunda mótmæltu í Þýskalandi í dag gegn umdeildum lögum sem nefnd eru ACTA (e. Anti-Counterfeiting Trade Agreement) og eru gegn brotum á höfundarrétti, sem talin eru geta heft frelsi á netinu. Meira »

Barist um skatta og eyðslu

í gær Baráttan um forsetaembættið í Bandaríkjunum er hafin og meðan forsetaframbjóðendur Repúblikanaflokksins nýta hvert tækifæri í forvali flokksins til þess að gagnrýna Barack Obama, forseta Bandaríkjanna, hefur forsetinn ákveðið að snúa vörn í sókn og markað stefnu sína í fjárlögum komandi árs. Meira »

Tóku forskot á sæluna í Bonn

Skrúðgangan var af veglegri gerðinni.
í gær Þar eð stutt er í hápunkt kjöthátíðar í Þýskalandi þýðir það aðeins eitt. Stutt er í veglegar skrúðgöngur á borð við þær í Köln, Düsseldorf, Aachen og Mainz. Í Bonn tóku menn þó forskot á sæluna en þar var farin skrúðganga í dag. Meira »

Veður hamlar aðgerðum á strandstað myndskeið

Snjór hamlar aðgerðum á strandstað
í gær Kuldakastið í Evrópu hefur haft sín áhrif á aðgerðir á strandstað skemmtiferðaskipsins Costa Concordia. Mikill snjór á ítölsku eyjunni Giglio hefur hamlað björgunarmönnum í að dæla úr skipinu 2.300 tonnum af olíu sem eru í tönkum skipsins. Meira »

Fimm blaðamenn handteknir

í gær Breska lögreglan handtók í dag fimm blaðamenn hjá breska blaðinu The Sun. Handtaka er að sögn lögreglunnar liður í rannsókn hennar á greiðslum blaðsins til lögreglu- og embættismanna fyrir upplýsingar. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
BIFREIÐASTILLINGAR NICOLAI
NICOLAI BIFREIÐASTILLINGAR. Faxafeni12 Sími 588 2455. Véla og hjólastillingar - ...
Gisting í Mosfellsbæ
Íbúðargisting f. 2-4, sængurföt og handklæði fylgja. Ein nótt kr. kr. 15.000,- ...
Infrarauður Saunaklefi -Sérpöntun V:330.000
Á www.simnet.is/eirikurs/sauna.html sérð þú hvað Infraraður sauna gerir fyrir þi...
GISTING Á SVEITASETRI
SVEITASETRIN Kjós og Grímsá. Hentugt fyrir hópa. Nánari upplýsingar: Björn Þór, ...
 
Uppboð - munir

None...
Bifreiðauppboð
Nauðungarsala
Sýslumaðurinn í Kópavogi Dalvegi 18, ...
Aðalfundur
Fundir - mannfagnaðir
Aðalfundur Aðalfundur F...
Til sölu bátur
Til sölu
Til sölu Til sölu bátur ...