Svört hjón eignast hvítt barn

Skjámynd af vef The Sun þar sem fjallað er um fjölskyldurnar. stækka

Skjámynd af vef The Sun þar sem fjallað er um fjölskyldurnar.

 Læknar á Queen Mary's spítalanum í Kent í Englandi eru furðu lostnir yfir hvítu barni sem svört hjón eignuðust á dögunum. Læknarnir segja Nmachi ekki vera albinóa og hvorugt foreldra eiga hvíta forfeður.

Faðir barnsins, Ben Ihegboro, sagði í viðtali við breska dagblaðið The Sun „Eftir að eiginkona mín eignaðist barnið störðum við bara orðlaus á það tímunum saman. Það eina sem ég sagði var að spyrja hvað í ósköpunum er í gangi?“

Nafn barnsins, Nmachi, merkir fegurð guðs á nígerísku, sem er móðurmál foreldra hennar.

„Hún líkist ekki albinóa. Allavega ekki þeim sem ég hef séð í Nígeríu eða í bókunum. Hún lítur bara út eins og heilbrigt hvítt barn,“ sagði Ben sem þvertekur fyrir það að eiginkona hans hafi verið honum ótrú. „Auðvitað er þetta mitt barn. Eiginkona mín er mér trú og þó svo að hún hafi ekki verið það, þá hefði barnið ekki litið svona út.“

„Við vitum ekki af hvítri arfleifð. Við veltum því hvort þetta hafi verið einhver genaútúrsnúningur en hvað sem því líður þá skiljum við ekkert í þessu síða, ljósa og hrokkna hári,“ sagði Ben.

Bryan Sykes, deildarforseti erfðafræðideildar Oxford háskóla, segist lítið botna í málinu. „Þegar kynþættir blandast geta afkvæmi borið þann húðlit sem er ljósari og stundum getur það verið mjög ólíkt húðlit foreldra. Þetta er algengt þar sem mikið er um blandaða húðliti eins og í karabíska hafinu. Foreldrar hennar eru samt frá Nígeríu. Þar er lítil sem engin blöndun,“ sagði prófesorinn sem kveður báða foreldra þurfa að bera hvít gen til að barnið beri þann lit.

Sykes bætti við að hárið væri mjög óvanalegt. „Jafnvel ljóshærð börn fæðast ekki með svona hár.“ Hann telur líklegast að um sé að ræða einhverskonar óþekkta genetíska stökkbreytingu.

Hjónin sem búa í Woolwich eiga tvö önnur börn sem bæði eru svört. Angela, móðir stelpunnar, sagði litinn litlu máli skipta. „Húðlitur Nmachi skiptir engu máli. Hún er kraftaverk. En hvað í ósköpunum gerðist eiginlega?“

Þetta er þó ekki í fyrsta sinn sem svört hjón í Bretlandi eignast hvítt barn en á vef The Sun er sagt frá öðru slíku tilviki.

Hér má finna frétt The Sun

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Það er víðar en á Íslandi dýrt að fyll'ann.

Bensínið aldrei dýrara í Danmörku

18:31 Það hefur aldrei verið jafn dýrt að fylla bensíntankinn í Danmörku og í dag er verðið á lítrann fór í 12,99 krónur eða 284,16 íslenskar krónur. Í Noregi fór verðið í 14,83 krónur, eða rúmar 315 íslenskar krónur. Meira »
Frá Grænlandi.

Búið að handtaka árásarmanninn

16:47 Íbúar í þorpinu Nutaarmiut á vesturströnd Grænlands eru harmi slegnir eftir að maður skaut þrjá til bana og særði tvo lífshættulega. Maðurinn er nú í haldi lögreglu. Meira »

Dvínandi vonir Rúmena og Búlgara

16:36 Vonir stjórnvalda í Rúmeníu og Búlgaríu um að geta orðið aðilar að Schengen-samstarfinu innan skamms dvínuðu í dag þegar Evrópusambandið sendi frá sér skýrslu þar sem ríkisstjórnirnar tvær eru hvattar til þess að grípa til frekari aðgerða gegn spillingu og skipulagðri glæpastarfsemi. Meira »

Fjölgar mest í Kanada

Fáni Kanada.
15:58 Mannfjöldi hefur aukist mest í Kanada af átta stærstu iðnríkjum heimsins (G8 ríkjunum) á síðasta áratug. Er það þakkað fjölda innflytjenda og aukinni frjósemi samkvæmt manntalsgögnum sem birt voru í dag og AFP fréttastofan greinir frá. Meira »

Sendi 11 ára nemanda sínum ástarbréf

Foreldrar mótmæla við skóla í Los Angeles og krefjast þess m.a. að öryggismyndavélar verði settar ...
15:53 Lögreglan í Los Angeles rannsakar nú hvort skólaliði á sextugsaldri hafi sent ellefu ára nemanda sínum ástarbréf. Skólaliðinn kenndi við sama skóla og tveir kennarar sem nú eru í haldi vegna gruns um kynferðisofbeldi gegn nemendum sínum. Meira »

Sjálfsmorðssprengja í Sómalíu

Frá Sómalíu.
16:05 Ellefu létu lífið þegar sprengja sprakk í höfuðborg Sómalíu, Mogadishu, í dag. Um var að ræða sjálfsmorðssprengju, en maður ók bíl, hlöðnum sprengiefnum að forsetahöll landsins og sprengdi þau síðan í loft upp. Meira »

Hinn ástsæli og hinn stórfenglegi myndskeið

Kim Jong-il kemur fyrir almenningssjónir
15:54 Norðurkóreska ríkissjónvarpið sendi út í dag myndskeið þar sem sjá má feðgana Kim Jong-il og son hans og núverandi leiðtoga landsins, Kim Jong-un, þar sem þeir virða fyrir sér ýmsar hernaðaræfingar. Meira »

Þrír myrtir á Grænlandi

15:07 Þrír menn voru myrtir í Nutaarmiut sem er nærri bænum Upernavik á vesturströnd Grænlands í dag. Tveir aðrir eru alvarlega sárir eftir árásina. Ódæðismaðurinn skaut mennina. Meira »

Atvinnuleysi eykst

Starfsmaður í verslunarmiðstöð í Swiss. Atvinnuleysi þar í landi hækkaði um 0,1% á milli mánaða.
14:59 Atvinnuleysi í Sviss mældist 3,4% í janúar í samanburði við 3,3% í desember samkvæmt opinberum tölum sem voru opinberaðar í dag. Í enda janúarmánaðar voru 134.317 manns atvinnulausir í Sviss, sem er hækkun um 3.655 segir starfsmaður Seco, efnahagsskrifstofu landsins. Meira »

Methiti á Svalbarða

Frá Longyearbyen á Svalbarða.
14:27 Á meðan frosthörkur geisa víðast um Evrópu er methiti á Svalbarða. Í dag mældist hitinn sjö stig og hefur aldrei verið hærri í febrúar. Meira »

Neyðarhjálp með þyrlum í Bosníu

14:50 Stjórnvöld í Bosníu hafa sent matvæli og lyf með þyrlum til þorpa í Bosníu sem eru innilokuð vegna snjóa en allt hefur verið á kafi í snjó þar í tólf daga. Meira »

Svaf hjá nemanda en sleppur við fangelsi

14:13 Breskur kennari sem átti í kynferðissambandi við 16 ára nemanda sinn sleppur við fangelsisvist vegna málsins vegna þess að nemandinn leitaði sjálfur eftir sambandi við hann og gerði sér far um að ögra honum kynferðislega samkvæmt fréttavef breska dagblaðsins Daily Telegraph. Meira »

Allt á kafi í snjó myndskeið

Snjóstormur hrellir Japana
14:11 Snjókoma veldur vandræðum í Japan í kuldakasti sem nú gengur yfir landið með tilheyrandi ofankomu, sem stefnir í að slá öll met. Meira »

Kunna ekki að bregðast við barnaníði

Fjögurra daga ráðstefna stendur nú yfir í Vatíkaninu um hvernig bæta megi viðbrögð við barnaníði.
13:10 Leiðtogar kaþólsku kirkjunnar hafa „ekki hugmynd" um hvernig þeir eigi að bregðast við barnaníði presta í Brasilíu, þar sem meira umburðaryndi gagnvart barnaníði er bundið í menninguna, miðað við Vestræn lönd. Þetta segir brasilískur sálfræðingur. Meira »

Linnulausar árásir í Homs

Frá borginni Homs í Sýrlandi.
12:51 Navi Pillay yfirmaður mannréttindamála hjá Sameinuðu þjóðunum, biðlaði til alþjóðasamfélagsins í morgun til að vernda óbreytta borgara í Sýrlandi. Borgin Homs í Sýrlandi er undir linnulausum árásum hers landsins. Meira »

Ástralía á kafi í vatni myndskeið

Ástralía á kafi í vatni
14:00 Vatnsyfirborð heldur áfram að hækka í Queensland-fylki í Ástralíu, en þar hafa verið mikil flóð að undanförnu vegna mikilla rigninga. Meira en 2.000 manns voru fluttir af heimilum sínum síðustu helgi og hafa íbúar svæðisins þungar áhyggjur. Meira »

Listaverk fyrir 1.407 milljarða

Mynd Qi Baishi af erni á furutré
13:03 Alls seldust listaverk fyrir 11,5 milljarða Bandaríkjadala, 1.407 milljarða króna, á listaverkauppboðum í heiminum á síðasta ári. Meira »

Facebooksíða Breivik enn lokuð

Anders Behring Breivik.
11:53 Norska lögreglan hefur ítrekað reynt að fá aðgang að facebooksíðu norska fjöldamorðingjans Andrers Behrings Breivik, en án árangurs. Breivik mun hafa átt um eitt þúsund vini á samskiptasíðunni. Facebook-fyrirtækið hefur ekki veitt þennan aðgang á þeirri forsendu að þar sé unnið samkvæmt ströngustu reglum um persónuvernd. Meira »

Erlend málefni

Svipaðar fréttir

Finnur.is
SEX SÉRHANNAÐIR BEIKI STÓLAR TIL SÖLU
ER MEÐ SEX FLOTTA BEIKI STÓLA Á 6500 KR STK SÍMI 869-2798...
Viðhaldsfrí frístundahús
Bjóðum ferðaþjónustuaðilum og einstaklingum lítl viðhaldsfrí heilsárs sumarhús ...
Keramikverkstæði til sölu
Keramikverkstæði er til sölu með möguleika á að vera áfram í sama húsnæði eða ti...
Málningar- og viðhaldsvinna
Getum bætt við okkur inni- og útiverkefnum. Vönduð vinnubrögð og góð umgengni. T...
 
Stúkan edda
Félagsstarf
l EDDA 6012020719 III...
Kynningarauglýsing - ríkiskaup

Kynningarauglýsing Fyrirhuguð ra...
Stúkan gimli
Félagsstarf
l Gimli 6012020619 III°...
Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í skóga- og seljahverfi

Aðalfundur félags sjálfstæðismanna í S...