Kastró vinnur að ævisögu

Fídel Kastró
Fídel Kastró Reuters

Fidel Kastró, fyrrverandi forseti Kúbu, vinnur að því að skrifa æviminningar sínar. Stefnt er að því að fyrsta bindið komi út í næsta mánuði.

Í bókinni verður einkum fjallað um hvernig nokkur hundruð mönnum undir stjórn Kastró tókst að sigra kúbanska herinn árið 1958.

Kastró er 83 ára gamall og segir að hann hafi unnið að æviminningum sínum síðan hann veiktist árið 2006, en í kjölfarið afhenti hann Raul bróður sínum völdin í landinu.

Kastró segir í samtali við kúbanska vefinn cubadebate.cu að hann sé að íhuga að kalla 25. kafla bókarinnar: Hvernig 300 sigruðu 10.000. Í bókinni verða birtar myndir, kort og áætlanir liðsmanna Kastró um að sigra einræðisherrann Fulgencio Batista sem hrökklaðist frá völdum árið 1958.
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert