Tveir Svíar létust í Víetnam

Ha Long flói.
Ha Long flói.

Tvær ungar sænskar konur voru meðal tólf sem létust þegar ferðamannabátur sökk í Ha Long flóa í morgun.  Níu erlendum ferðamönnum og sex heimamönnum var bjargað úr sjónum.

Mikill leki kom að skipinu og það sökk snemma í morgun.  11 erlendir ferðamenn og einn víetnamskur leiðsögumaður drukknuðu en fólkið var sofandi í klefum sínum þegar skipið sökk.  

Auk sænsku kvennanna tveggja voru ferðamenn frá Bandaríkjunum, Ástralíu, Frakklandi, Ítalíu og Sviss um borð í bátnum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert