Tekist á um loftslagsvísindi

Repúblikanar draga í efa hlýnun jarðar.
Repúblikanar draga í efa hlýnun jarðar. Reuters

Repúblikanar á Bandaríkjaþingi reyna nú hvað þeir geta til þess að koma í veg fyrir að lög verði áfram sett um útblástur gróðurhúsalofttegunda. Hafa demókratar hvatt þá til þess að horfast í augu við vísindalegar staðreyndir en með takmörkuðum árangri.

Hafa repúblikanar haldið því fram að ekki séu öll kurl komin til grafar í rannsóknum á hlýnun jarðar og hafa sakað leiðandi sérfræðinga í þeim málefnum sem hafa komið fyrir þingnefnd í dag um að vera hrokafulla og tilheyra elítu.

„Þeir reyna bókstaflega að láta menn líta út fyrir að aðhyllast kenningu um flata jörð en þeir eru bara ósammála þeim á vísindalegan hátt,“ kvartaði til dæmis Steve Scalise, þingmaður repúblikana frá Louisiana-fylki. Breska blaðið The Guardian greinir frá þessu á vefsíðu sinni í dag.

Demókratar höfðu þrýst á um að loftslagssérfræðingar væru kallaðir fyrir þingnefnd í dag til þess að reyna að fá repúblikana til þess að endurskoða tilraunir sínar til þess að vængstífa ríkisstjórn Obama í að bregðast við  loftslagsbreytingum.

Hyggjast repúblikanar reyna að greiða atkvæði á fimmtudag um frumvarp sem myndi endanlega koma í veg fyrir að umhverfisstofnun Bandaríkjanna geti dregið úr útblæstri gróðurhúsaloftegunda verksmiðja og að hægt sé að draga frekar úr útblæstri bíla eftir árið 2016.

Henry Waxman, þingmaður demókrata frá Kaliforníu, segir frumvarp repúblikana vera stórkostlega ábyrgðarlaust.

„Ef læknirinn minn segði mér að ég væri með krabbamein þá myndi ég ekki gera dauðaleit um allt landið að einhverjum sem segði mér að ég þyrfti engar áhyggjur að hafa af því. Flest okkar skiptum ekki okkar eigin dómgreind fyrir álit sérfræðinga þegar það kemur að læknisfræði, kjarnorkuvísindum, brúarbyggingum eða í hönnun öryggiskerfa fyrir tölvur,“ sagði Waxman.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert