Óvissutímar hjá Grikkjum

Miklir óvissutímar eru hjá Grikkjum um þessar mundir og hörð mótmæli eru á götum úti. Grikkir segjast ekki sannfærðir um að nýrri ríkisstjórn takist að leysa úr vandamálum þjóðarinnar.

Átök brutust út á nýjan leik milli lögreglumanna og mótmælenda er fólk safnaðist saman á Syntagma torgi í gær.

George Papandreou, forsætisráðherra Grikklands, tilkynnti að hann hygðist stokka upp í ríkisstjórn sinni til að geta tekist betur á við fjárhagslegan vanda ríkissjóðs.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert