Einstaklingur kom inn á lögreglustöð 4 í Grafarholti og tilkynnti að hann hefði verið rændur og orðið fyrir líkamsárás á áttunda tímanum í kvöld.
Samkvæmt dagbók lögreglu var talsverðu fjármagni rænt af viðkomandi sem gat þó gefið greinargóða lýsingu af árásarmönnunum.
Í Garðabæ handtók lögregla ökumann vegna gruns um akstur undir áhrifum áfengis- og fíknefna.
Kom í ljós að viðkomandi var ekki með gild ökuréttindi og var hann fluttur á lögreglustöð í sýnatöku, en var látinn laus að henni lokinni.