Skar getnaðarliminn af

Konan skar liminn af með hníf.
Konan skar liminn af með hníf.

Kona í Kaliforníu í Bandaríkjunum hefur verið handtekin fyrir að skera getnaðarlim af eiginmanni sínum. Konan, sem er 48 ára, er grunuð um að hafa gefið manninum svefnlyf út í mat áður en greip til þessara aðgerða.

Hjónin höfðu ákveðið að skilja. Konan mun hafa bundið manninn við rúmið áður en hún lét til skarar skríða. Limnum henti hún í ruslið. Þegar lögregla mætti á svæðið var maðurinn enn bundinn og með alvarlegar blæðingar.

Konan lét neyðarlínuna vita um atburðinum.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert