Kastaði raksápu á Murdoch

Uppnám varð á fundi breskrar þingnefndar nú síðdegis þegar maður ruddist inn í fundarsalinn og reyndi að ráðast á feðgana Rupert og James Murdoch, sem þar voru og svöruðu spurningum þingmanna. Maðurinn mun hafa kastað raksápu að feðgunum.

Wendi Deng, eiginkona Ruperts Murdoch, stökk á fætur manni sínum til varnar og virtist hún slá til árásarmannisins. Hann var handtekinn og fjarlægður. 

Breska ríkisútvarpið hefur eftir einum þingmanni, að maðurinn hafi verið með raksápu á pappadiski og reynt að kasta diskinum á Murdoch.

Breskar sjónvarpsstöðvar sýna beint frá þingnefndarfundinum og einnig er sýnt beint frá fundinum á vef breska þingsins. Þar sást þegar uppnám varð í salnum og James Murdoch spratt á fætur, að því er virtist til að verja föður sinn, sem sat áfram við borðið.

Fundinum var síðan frestað í 10 mínútur. 

Maður reynir að ráðast á Rupert Murdoch í fundarsal í …
Maður reynir að ráðast á Rupert Murdoch í fundarsal í breska þinghúsinu. Reuters
Feðgarnir James og Rupert Murdoch á fundi þingnefndarinnar í dag.
Feðgarnir James og Rupert Murdoch á fundi þingnefndarinnar í dag. Reuters
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert