Vilja fangelsa móður barnsins

Myndin tengist ekki fréttinni.
Myndin tengist ekki fréttinni. Ásdís Ásgeirsdóttir

Móðir 15 mánaða gamals drengs, sem fannst látinn í gær, hefur verið úrskurðuð í gæsluvarðhald samkvæmt fréttatilkynningu frá dönsku lögreglunni. Drengurinn fannst í íbúð í  Løgumkloster þar sem móðirin bjó ásamt unnusta sínum.

Móðirin tilkynnti málið til lögreglu.  Bæði móðirin og unnusti hennar voru handtekin í kjölfarið og í morgun úrskurðaði dómstóll í Sønderborg þau í gæsluvarðhald.

Í réttarhaldinu kom fram að drengurinn hafði sætt misþyrmingum. Hann hafði m.a. höfuðkúpubrotnað og fengið innvortis blæðingar. 

Sjá frétt á vef Jyllandsposten.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert