Minnst 17 féllu í árásunum

Óttaslegin ungmenni reyndi að bjarga sér til lands á sundi …
Óttaslegin ungmenni reyndi að bjarga sér til lands á sundi úr eynni þar sem skotóður byssumaður myrti félaga þeirra. Reuters

Að minnsta kosti 17 féllu í sprengingunni í miðborg Osló og skotárásinni á Utøya í dag. Fjöldi hinna látnu gæti aukist, að sögn Sveinung Sponheim, starfandi lögreglustjóra í Osló. 

Sjö fórust í sprengingunni í Osló og staðfest er að a.m.k. 10 hafi fallið í skotárásinni á Utøya. Fréttavefur VG  segir lögregluna óttast að fleiri kunni að finnast látnir í nótt.

Fram hefur komið að óttaslegin ungmenni hafi reynt að forða sér á sundi úr eyjunni.

Utøya.
Utøya.

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert