Einn látinn eftir lestarslys á Indlandi

Frá mannskæðu lestarslysi fyrr í þessum mánuði á Indlandi.
Frá mannskæðu lestarslysi fyrr í þessum mánuði á Indlandi. JITENDRA PRAKASH

Að minnsta kosti einn lést þegar tvær farþegalestir rákust framan á hvor aðra í austurhluta Indlands í dag. Eru fjölmargir fastir inni í lestarflökunum. Fór önnur lestin út af sporinu við áreksturinn.

Átti slysið sér stað um 350 kílómetra norður af borginni Kolkata í Vestur-Bengal-héraði. Kviknaði í vélum lestanna. Hafa tugir manns verið fluttir á sjúkrahús.

Aðeins eru þrjár vikur frá því að troðfull hraðlest fór út af sporinu á miklum hraða í Uttar Pradesh-fylki með þeim afleiðingum að 63 fórust. Var lestin á leið til Nýju Delí frá Kolkata.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert