Átta drepnir í fjölskyldudeilum í Ohio

mbl.is

Átta létust, þar af ellefu ára barn, í skotárás í Ohio í Bandaríkjunum í dag. A.m.k. einn er særður.

Lögregla segir að ágreiningur innan fjölskyldu hafi verið upphafið að voðaverkinu. Fólkið var drepið á tveimur stöðum. Skotmaðurinn myrti fyrst fimm manns og fór síðan að öðru húsi og skaut tvo til viðbótar áður en lögregla skaut hann til bana.

Í frétt AP segir að lögregla hafi ekki viljað gefa frekari upplýsingar um málið, en staðfesti að allir sem létust séu úr sömu fjölskyldunni. Lögreglan vildi ekki svara því um hvað deilurnar snerust.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert