Kúdrín segir af sér

Alexei Kúdrín ásamt Dmitrí Medvedev
Alexei Kúdrín ásamt Dmitrí Medvedev Reuters

Fjármálaráðherra Rússlands, Alexei Kúdrín, hefur sagt af sér embætti en forseti Rússlands, Dmitrí Medvedev, hafði gefið honum frest til miðnættis að ákveða hvort hann styddi efnahagsaðgerðir stjórnvalda eða segði af sér að öðrum kosti. Kúdrín gagnrýndi efnahagsstefnu stjórnvalda harðlega um helgina.

„Ef þú ert ekki sammála stefnu forsetans, sem er framkvæmd af ríkisstjórninni, þá hefur þú einungis einn hlut í stöðunni - að segja af þér," hafa rússneskar fréttastofur eftir Medvedev. Á hann að hafa bætt við er hann ræddi við Kúdrín: Þú verður að taka skjóta ákvörðun og svara mér í dag.

Alexei Kúdrín lýsti því yfir um helgina að hann myndi ekki gegna embættinu áfram ef Dmitrí Medvedev verður forsætisráðherra eftir forsetakosningar á næsta ári.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert