Ekkert lát á mótmælum í New York

Mótmælendur í New York mótmæltu í gær handtökum yfir 700 manns úr hreyfingunni sem hefur hertekið Wall Street undanfarnar tvær vikur. Var fólkið handtekið fyrir að hindra umferð á Brooklyn-brúnni. Heimildarmyndagerðarmaðurinn Michael Moore og leikkonan Susan Sarandon eru á meðal þeirra sem lýst hafa stuðningi við mótmæli.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert