Björgunarsjóður yfir billjón

Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, Petr Necas, forsætisráðherra Frakklands og Frakklandsforseti, Nicolas ... stækka

Rodriguez Zapatero, forsætisráðherra Spánar, Fredrik Reinfeldt, forsætisráðherra Svíþjóðar, Petr Necas, forsætisráðherra Frakklands og Frakklandsforseti, Nicolas Sarkozy við upphaf leiðtogafundarins. Reuters

Heimildarmenn AFP-fréttastofunnar segja að á leiðtogafundi ESB sé rætt nú rætt um að björgunarsjóður ESB verði stækkaður upp í 1,3 billjónir evra. Hann verði með öðrum orðum fjórfaldaður. Sagt er að Þýskaland styðji slíka aukningu.

Áður höfðu 440 milljarðar evra verið settar í björgunarsjóðurinn (EFSF) en það dugði ekki til. Málið er enn óútkljáð, ekki er fyllilega ljóst hvaðan peningarnir koma og ekki mun standa til að nefna nákvæmar fjárhæðir við lok fundarins. Kína, Rússland og Brasilía hafa þó gefið til kynna að þau séu tilbúin til að lána fé til að styrkja sjóðinn.

Markaði í Bandaríkjunum hafa tekið fregnunum vel, þótt óljósar séu. Dow-Jones vísitalan hækkaði um 1,38%, Nasdaq-vísitalan hækkað um 0,46% og S&P vísitalan um 1,05%.

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda

Erlent »

Starfsmaður Rauða krossins í útkalli.

Aðstoðar þörf í Mósambík eftir fellibylji

11:46 Alþjóðlegi Rauði krossinn kallaði í dag eftir þremur milljónum dala, um 375 milljónum kr., til að aðstoða þúsundir fjölskyldna í Mósambík sem enn bíða aðstoðar eftir að tveir fellibyljir gengu yfir landið í síðasta mánuði. Meira »
Angela Merkel kanslari við minningarathöfnina.

Fórnarlamba nýnasistahóps minnst

11:11 Einnar mínútu þögn var haldin í Þýskalandi í morgun til að minnast fórnarlamba nýnasista. Angela Merkel kanslari sagði fjölskyldum fórnarlambanna við sérstaka minningarathöfn í Berlín að þjóðin syrgði með þeim. Meira »

Flytja erlenda fanga úr fangelsinu

Fangar í varðturni í Kerobokan-fangelsinu í Denpasar á Balí.
10:38 Yfirvöld í Indónesíu byrjuðu í dag að flytja erlenda fanga úr Kerobokan-fangelsinu á Balí. Þar hafa miklar óeirðir brotist út og hefur föngunum tekist að koma fangavörðunum frá og taka við stjórninni. Meira »

Breivik á marga pennavini

Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik
09:37 Norski fjöldamorðinginn Anders Behring Breivik stendur í umfangsmiklum bréfaskriftum við fjölda manna úr fangaklefa sínum. Honum er mikið í mun að stefnuyfirlýsing hans, hið svokallaða manifesto, nái til sem flestra. Meira »

Fangaverðir hjálpuðu föngum að flýja myndskeið

Fangaverðir handteknir í Mexíkó
07:57 Tugir mexíkóskra fangavarða voru handteknir í gær, grunaðir um að hafa aðstoðað dæmda meðlimi eiturlyfjagengja við að flýja úr fangelsi síðastliðna helgi. Meira »

Umferðamiðstöð sprengd í Peshawar myndskeið

Sprenging á umferðamiðstöð í Peshawar
10:07 Átta létust og þrjátíu særðust þegar sprengja sprakk í umferðamiðstöð í Peshawar í norðvesturhluta Pakistans. Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni. Meira »

Halda hátíð fyrir Pútín

Frá hátíðahöldunum í Moskvu í morgun.
08:17 Um 30,000 manns gengu fylktu liði um miðborg Moskvu í morgun til að sýna stuðning sinn við forsetaframboð Vladimirs Pútíns forsætisráherra Rússlands. Stjórnarandstæðingar segja að fólki hafi verið skipað að taka þátt í hátíðahöldunum. Meira »

Segja samkynhneigð glæpsamlega

Frá Indlandi.
07:43 Innanríkisráðuneyti Indlands hvetur hæstarétt landsins til að úrskurða um að kynlíf samkynhneigðra sé glæpur. Ráðuneytið segir það vera ósiðlegt, gegn öllum náttúrulögmálum og að þannig smitist alnæmi. Meira »

Fundu lík fimm ára stúlku myndskeið

Kafarar finna fleiri lík í Costa Concordia
07:24 Kafarar fundu í nótt átta lík í flaki skemmtiferðaskipsins Costa Concordia sem marar undan strönd ítölsku eyjarinnar Giglio. Þar á meðal er lík fimm ára gamallar stúlku. Meira »

Talinn hafa skotið bekkjarsystur sína myndskeið

Níu ára drengur yfirheyrður vegna skotárásar á stúlku
06:49 Níu ára gamall bandarískur drengur er í haldi lögreglu vegna gruns um að hafa skotið úr byssu á átta ára gamla bekkjarsystur sína. Meira »

Óöld í Írak í nótt

Frá Bagdad í Írak.
07:17 Að minnsta kosti 32 létu lífið í sprengju- og skotárásum í Írak í nótt, þar af létust 22 í höfuðborginni Bagdad.  Meira »

Strauss-Kahn fyrir dóm í mars

Dominique Strauss-Kahn
Í gær, 23:03 Fyrsta fyrirtakan í einkamálinu sem höfðað hefur verið í Bandaríkjunum gegn Dominique Strauss-Kahn hefur nú verið dagsett, og fer fram þann 15. mars. Hann mun því standa í ströngu í næsta mánuði því hann hefur líka verið boðaður fyrir rannsóknardóm í Frakklandi vegna ásakana um aðild að vændishring Meira »

Samkynhneigðir „ekki ofsóttir“ í Úganda

Yoweri Museveni forseti Úganda.
Í gær, 22:29 Forseti Úganda fullyrti í dag að hann væri ekki hlynntur ofsóknum gegn samkynhneigðum í landi sínu, þrátt fyrir að alræmt frumvarp gegn samkynhneigð hafi að nýju verið lagt fyrir þingið. „Samkynhneigðir hafa, í litlum mæli, verið til í okkar hluta svörtu Afríku," sagði forsetinn í viðtali við BBC. Meira »

Heilsuleysi Chavez veldur óvissu

Hugo Chavez missti hárið vegna krabbameinsmeðferðar í fyrra. Læknar hafa nú fundið ný mein sem ...
Í gær, 21:38 Mikil óvissa ríkir nú um hver muni taka við stjórnartaumunum í Venesúela, eftir að forsetinn Húgó Chavez tilkynnti að krabbameinið sem hann barðist við væri komið upp að nýju. Chavez hefur verið allsráðandi í landinu frá árinu 1999. Forsetakosningar verða í haust. Meira »

Áfram mótmælt í Valencia

Niðurskurði í menntamálum mótmælt
Í gær, 21:11 Ekkert lát virðist ætla að vera á mótmælum í spænsku borginni Valencia en þúsundir tóku þátt í mótmælum þar í kvöld. Er niðurskurði í menntamálum og hörku sem lögregla hefur beitt gagnvart námsmönnum mótmælt. Meira »

Keyrði á fullum hraða á vegg

Björgunarmenn hjálpa farþegum sem út úr lestarflakinu við Once stöðina í Buenos Aires.
Í gær, 22:10 Aðkoman að lestarslysinu mannskæða í Buenos Aires í Argentínu í dag var skelfileg að sögn vitna. Lestin keyrði á fullu stími inn á lestarstöðina með bilaða hemla og áreksturinn varð gríðarharður. „Fólk var í kremju og öskraði í örvæntingu. Ég sá blóð og lík út um allt," sagði einn sjónarvotta. Meira »

Myrti fjóra í heilsulind myndskeið

Fimm létust í skotárás í Atlanta
Í gær, 21:37 Vopnaður maður skaut fjóra til bana í heilsulind í úthverfi bandarísku borgarinnar Atlanta í gærkvöldi. Meðal fórnarlamba hans voru tvær systur hans. Meira »

Króatískir mjólkurbændur mótmæla

Mjólkurkýr.
Í gær, 21:02 Króatískir mjólkurbændur flykktust út á götur höfuðborgarinnar Zagreb í dag og mótmæltu verðlækkun dótturfyrirtækis franska framleiðandans Lactalis, niður fyrir meðalverð Evrópusambandsins. Þeir telja sig ekki geta keppt við verðlækkunina. Meira »

Svipaðar fréttir

Finnur.is
Bókhald - skattar - fjármál
Bókhaldsþjónusta fyrir einstaklinga, fyrirtæki, húsfélög. Fagleg og áreiðanleg v...
stærðfræði
Get tekið að mér aðstoð í stærðfræði framhaldsskóla. s. 699 1176...
Hægindastólar og stofuborð
Til sölu tveir gamlir hægindastólar og stofuborð með glerplötu. Verð kr. 50.000 ...
Stanton DJ-CerwinVega - www.nlh.is
DJ búnaður - SCS.4DJ KOMIN! Plötu, CD, og tölvu - mixer - heyrnatól og Mic. Cerw...
 
Yfirvélstjóri
Sjávarútvegur
Yfirvélstjóri Oddi hf. á Patreksfir...
Hvítasunnukirkjan fíladelfía
Félagsstarf
Sunnudagur Kl. 11.00 Samkoma o...
Lektor í vistvænni raforkuverkfræði / endurnýjanleg orka
Háskólakennsla
Tvö störf við Verkfræði- og náttúruvís...
Skólameistarar: fjölbrautaskóli suðurnesja, fjölbr. suðurlands
Sérfræðistörf
Laus embætti hjá mennta- og menni...