Blóðugar sprengjuárásir í Pakistan

Sjö létu lífið er sprengja sprakk í Pakistan í dag. stækka

Sjö létu lífið er sprengja sprakk í Pakistan í dag. AFP

Vegsprengja varð sjö að bana í Pakistan í dag þegar bifreið lögreglumanna var ekið nálægt henni. Sex lögreglumenn og einn almennur borgari lét lífið í sprengjutilræðinu. 

Árásin átti sér stað í borginni Kohat í norðvesturhluta landsins. Haft er eftir talsmanni lögreglu að sérstaklega hafi verið setið fyrir lögreglumönnunum en sprengjunni var komið fyrir í ræsi í götunni.

Enginn hefur lýst tilræðinu á hendur sér en öfgasinnaðir íslamistar hafa gert fjölmargar árásir á þessu svæði.

Fyrr í dag létust 25 manns í öðru sprengjutilræði. Þrjú börn eru sögð meðal hinna látnu. 

  • Til baka
  • Blogga um frétt
  • Senda
TOYOTA AVENSIS S/D SOL árgerð 2007
TOYOTA AVENSIS S/D SOL árgerð 2007. Aukahlutir / Annar búnaður: Álfelgur Ak...
Sófasett
Leðursófasett til sölu. 3ja sæta sófi og tveir stólar. Verð kr, 30.000. Uppl...
Brit ræktendaklúbbur
Ræktendaklúbbur Brit býður ræktendum upp á bestu kjör og áhugaverða bónusa, frek...
Vaktaðu heitapottinn!
Með einföldu kerfi getur þú vaktað hita og straum á heitapottinum. Vertur áhyggj...
 
Research lawyer
Sérfræðistörf
RESEARCH LAWYER The EFTA Court in Lux...
6 mál
Nauðungarsala
Uppboð Einnig birt á www.naud...
Sýslumaðurinn í reykjavík - framhald uppboðs

Uppboð Einnig birt á www.naudungarsolur....
Sumarafleysingar í keflavík
Ófaglært starfsfólk
????????? ? ???????? ?????? ? ???...