Faldi flatskjá á milli fótanna

Frá Osló höfuðborg Noregs. Úr myndasafni.
Frá Osló höfuðborg Noregs. Úr myndasafni. www.norden.org

Kona var handtekin í Osló höfuðborg Noregs í gærkvöldi eftir að hafa gengið út úr raftækjaversluninni Elkjøp með 42 tomma flatskjá á milli fótanna. Konan var í fylgd með karlmanni og hafði reynt að fela tækið undir síðu pilsi sem hún klæddist.

Vitni varð vart við þjófnaðinn og gerði lögreglu aðvart. Fólkið var komið út í strætisvagnabiðskýli í nágrenninu og beið eftir strætisvagni þegar hafðar voru hendur í hári þess samkvæmt fréttavefnum Thelocal.no.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert