Vilja herða byssulöggjöfina

Fólk kom saman við Hvíta húsið í gærkvöldi, kveikti á …
Fólk kom saman við Hvíta húsið í gærkvöldi, kveikti á kertum, baðst fyrir og hvatti til þess að byssulöggjöfin yrði hert. MLADEN ANTONOV

Hópur manna kom saman við Hvíta húsinu í gærkvöldi til að minnast þeirra sem fórust í skotárásinni í bænum Newtown í Connectiuct í gær. Fólkið krafðist þess að Barack Obama forseti beitti sér fyrir því að herða löggjöf um byssueign í Bandaríkjunum.

Obama sagði í ávarpi sínu til þjóðarinnar í gær að það væri löngu tímabært að grípa til þýðingarmikilla aðgerða sem stuðluðu að því að svona atburðir endurtækju sig ekki.

Aðgerðir í þá veru að takmarka byssueign í Bandaríkjunum eru umdeildar meðal þjóðarinnar. Þó að margir séu þeirrar skoðunar að nauðsynlegt sé að herða löggjöfina hefur meirihluti þjóðarinnar fram til þessa verið andvígur því að takmarka byssueign. Ákvæði er í stjórnarskrá Bandaríkjanna um réttindi þegna landsins til að verja sig.

Fjöldamorðin í Sandy Hook-skólanum hafa ýtt undir umræður um þetta viðkvæma mál. Michael Bloomberg, borgarstjóri New York, hvatti til þess í gær að sett yrðu lög sem fækkuðu skotvopnum í umferð. Hann sagði byssueign Bandaríkjamanna þjóðarböl.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert