Lög sem heimila hjónavígslu samkynhneigðra hafa verið endanlega samþykkt í fulltrúadeild franska þingsins. Jafnframt heimila þau samkynhneigðum pörum að ættleiða börn.
Eftir aðra og seinni umræðu, sem stóð yfir í 136 klukkustundir, voru lögin samþykkt með 331 atkvæði gegn 225.Tíu þingmenn sátu hjá.