Fjárhirðir frá Bosníu liggur nú alvarlega slasaður á spítala eftir árás skógarbjarnar. Maðurinn, Blazo Grkovic, varði sig með exi þegar dýrið réðst á hann. Að sögn fjárhirðisins lagði björninn til atlögu þar sem hann gætti kinda sinna við rætur fjallsins Volujak og sló hann björninn í hnakkann.
„Ég var með exi í hendinni og tókst að slá hann í hnakkann,“ sagði Grkovic í samtali við fréttastofu. „Dýrið datt og við slógumst.“
Dýrið beit fjárhirðinn ítrekað og sló Grkovic það þar til það lést. „Ég er með sár víða um líkamann, sérstaklega á vinstri handleggnum þar sem björninn beit mig tvisvar eða þrisvar,“ sagði Grkovic.
Lögreglan rannsakar nú atvikið.