Filippus prins, eiginmaður Elísabetar Englandsdrottningar, var í dag útskrifaður af sjúkrahúsi þar sem hann hefur dvalið síðastliðna ellefu daga. Hann brosti og veifaði til almennings þegar hann yfirgaf bygginguna.
Áður hafði verið gert ráð fyrir að Filippus þyrfti að dvelja á spítalanum í tvær vikur, þar sem hann var að jafna sig eftir kviðarholsaðgerð. Samkvæmt heimildum AFP mun Filippus eyða næstum tveimur mánuðum í að safna kröftum og jafna sig að fullu eftir aðgerðina.