Foreldrar þriggja ára bandarískrar stúlku hafa verið ákærðir fyrir morð á dóttur sinni. Maður sem vinnur að rannsókninni segir að málið sé eitt versta dæmi um næringarskort hjá barni sem hann hefur séð. Stúlkan vó aðeins um 5 kíló þegar hún lést en það er meðalþyngd þriggja mánaða barns. Móðir hennar vafði henni inn í skítugt teppi og fór með hana á sjúkrahús, en þá var stúlkan þegar látin.
Þegar rannsóknarmenn komu til að rannsaka heimili stúlkunnar mætti þeim afar sóðalegt heimili. Á líkama stúlkunnar voru marblettir og bitför, en talið er að þau geti verið eftir flær eða skordýr sem gætu hafa bitið hana.
Parið á fjögur önnur börn, níu, átta, sjö ára og einnig tvíbura þriggja ára stúlkunnar sem lést. Þeim hefur öllum verið komið fyrir í umsjón barnaverndarnefndar.