Fleiri en 70 eru látnir eftir tvær sjálfsmorðsárásir sem gerðar voru á kirkju í norðvesturhluta Pakistans í dag. Talið er að árásin sé sú mannskæðasta sem kristnir hafa orðið fyrir í landinu. Sprengjurnar sprungu er guðsþjónustu var að ljúka í All Saints-kirkjunni í Pershawar.
Frans páfi fordæmdi árásirnar í dag.