Sprengdu brú í loft upp

Flóttafólk í Malí.
Flóttafólk í Malí. AFP

Vopnaður hópur öfgafullra íslamista sprengdi upp brú suður af bænum Gao í norðurhluta Malí í dag. Tveir almennir borgarar slösuðust.

Að sögn lögreglunnar notuðu mennirnir dínamít til að sprengja upp brúnna sem er skammt frá landamærunum að Níger. 

Óöld hefur ríkt í Malí mánuðum saman. Tekist er á um landsvæði, aðallega í norðurhluta landsins.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert