Át dóttur sína og drakk blóð hennar

Fyrr á þessu ári myrtu þorpsbúar unga konu sem þeir …
Fyrr á þessu ári myrtu þorpsbúar unga konu sem þeir grunuðu um galdra. AFP

Maður sem lýst er sem vampíru hefur verið handtekinn á Papúa Nýju-Gíneu en hann er grunaður um að hafa myrt dóttur sína með því að bíta hana á barkann, borðað hluta líkama hennar og drukkið blóð hennar.

Að sögn lögreglu átti atvikið sér stað á miðvikudag skammt frá Lae. Stúlkan, sem var þriggja ára gömul, var ásamt móður sinni í heimsókn hjá föður sínum. Hann greip stúlkuna skyndilega og hljóp með hana inn í skóglendi þar skammt frá. Svo virðist sem hann hafi síðan bitið hana á háls og borðað og drukkið blóð hennar.

Tveir drengir sem voru að klifra í kókoshnetupálmum þar skammt frá sáu til mannætunnar og hlupu eftir hjálp. Að sögn lögreglu hafði vera drengjanna engin áhrif á mannætuna annað en hann fór að hlægja og hélt áfram að borða dóttur sína.

Þegar fólk kom á staðinn á maðurinn að hafa kastað líki dóttur sinnar frá sér og hlaupið á brott en var handtekinn á flóttanum.

Svarti galdur, mannát og galdrar koma alltaf upp reglulega á Papúa Nýju-Gíneu.

Á síðasta ári handtók lögreglan á annan tug sem tengdust mannáti. Var hópurinn grunaður um að hafa myrt sjö, etið heila þeirra hráa og soðið súpu úr getnaðarlimum þeirra.

mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert