Jarðskjálfti sem mældist 6,6 stig reið yfir austurströnd Rússlands í morgun.
Upptök skjálftans voru um 170 kílómetrum frá Kamsjatkaskaganum og voru þau á 47 kílómetra dýpi. Ekki er gert ráð fyrir að flóðbylgja komi að strönd Bandaríkjanna.
Skjálftinn varð kl. 5 í nótt að íslenskum tíma.