Íbúar Soweto syrgja sinn besta son

Íbúar í Soweto, sem er úthverfi Jóhannesarborgar í S-Afríku, syrgja í dag sinn besta son, Nelson Mandela, sem lést í gærkvöldi, 95 ára að aldri. Margir hafa lagt leið sína að húsi Mandela við Vilakazi götu í Soweto þar sem Mandela bjó í mörg ár.

„Saga Suður-Afríku verður ekki skilin án sögu Soweto.“ Þetta sagði Walter Sisulu, einn af frelsishetjum blökkumanna sem sat áratugum saman í fangelsi með Nelson Mandela.

„Sigurdagurinn“ varð „Dagur sátta“

Dagarnir 16. desember og 16. júní hafa sérstaka þýðingu í suður-afrískri sögu. Meðan hvítir menn stjórnuðu S-Afríku héldu þeir 16. desember hátíðlegan, en dagurinn var hins vegar sorgardagur í augum blökkumanna. 16. júní hefur hins vegar sérstaka þýðingu í hugum blökkumanna, þó sá dagur tengist ekki síður sorglegum atburðum.

Þegar hópar kalvínista frá Hollandi fóru að flytja til S-Afríku um miðja 18. öld bjuggu innan við 1.000 hvítir menn í landinu. Eftir því sem fjöldi þeirra jókst og umsvif þeirra urðu meiri versnuðu samskipti þeirra við innfædda. Evrópsku landnemarnir, sem kallaðir voru Búar, lögðu stöðugt meira landsvæði undir sig. Eftir að hafa lagt undir sig Gauteng-hérað héldu þeir áfram austar í landið og hugðust leggja undir sig Drakensberg. Í febrúar árið 1838 sendu Búar sendinefnd á fund Dingaan, konungs Zulu-ættbálksins. Þeir buðu honum friðarsamning sem fól í sér að Zulu-menn létu af hendi mikið landsvæði. Dingaan undirritaði samninginn en lét síðan myrða alla sendinefndina. Hann lét síðar þetta sama ár myrða fleiri Búa sem sest höfðu að í nágrenninu.

Búar tóku nú að safna liði og í desember lögðu þeir til atlögu. Þann 16. desember kom herflokkur þeirra að Ncome-ánni og þar laust Zulu-mönnum og Búum saman. Eftir þriggja tíma orrustu var vatnið í ánni orðið rautt, enda nefndu Búar ánna Blood River (Blóðáin). Um 3.000 Zulu-menn létust í átökunum, en þrír Búar særðust. Eftir þennan „glæsta sigur“ gat ekkert stöðvað landnám Búa. Þeir fögnuðu sigrinum árlega því að 16. desember kölluðu þeir „Sigurdaginn“. Dagurinn var haldinn hátíðlegur í S-Afríku allt til ársins 1994. Þá tóku blökkumenn við völdum í landinu og þeir breyttu nafni dagsins og kölluðu hann „Dag sátta“.

Erfitt líf í Soweto

Soweto er eitt af úthverfum Jóhannesarborgar, en það byggðist upp í lok 19. aldar í tengslum við námuvinnslu. Fólk víða að úr heiminum kom til Jóhannesarborgar til að græða á demantavinnslu. Það var ekki efst í huga námueigenda að tryggja velferð þeirra sem unnu í námunum. Aðstæður fólks í Soweto voru vægast sagt hörmulegar. Ekkert var hugað að hreinlætisaðstöðu og ungbarnadauði var gríðarlegur. Líf fólks snerist um að komast af. Á hverjum degi fóru þúsundir manna til vinnu í námunum. Það var því nær að líkja Soweto við þrælabúðir en borg.

Barátta Nelsons Mandela og annarra forystumanna Afríska þjóðaráðsins gegn aðskilnaðarstefnunni var bæði löng og ströng. Í upphafi einsetti Afríska þjóðaráðið sér að ná fram breytingum með friðsamlegri baráttu, en þegar öllum var orðið ljóst að þessi barátta skilaði engum árangri stofnaði Afríska þjóðarráðið deild sem einbeitti sér að skemmdarverkum á samgönguleiðum, verksmiðjum og öðrum eignum ríkisins. Eftir að búið var að handtaka Nelson Mandela og aðra leiðtoga blökkumanna varð andstaða við kynþáttastefnuna veikari þar sem alla forystu blökkumanna skorti.

Leiðtogar blökkumanna sem ekki voru í fangelsi reyndu með samningum við stjórnvöld að bæta réttindastöðuna, en þeim varð lítið ágengt.

Vildu ekki læra Afrikaans

Barátta blökkumanna gegn aðskilnaðarstefnu hvíta minnihlutans í S-Afríku tók nýja stefnu 16. júní 1976, en þá hófst svokölluð Soweto-uppreisn. Uppreisnin átti stóran þátt í að vekja heimsbyggðina til umhugsunar um þá kynþáttastefnu sem stjórnvöld í landinu ráku.

Ástæðan fyrir því að skólabörn á aldrinum 12-18 ára fóru í mótmælagöngu í Soweto þennan dag var sú að þau hugðust mótmæla ákvörðun stjórnvalda um að láta öll börn í S-Afríku læra tungumál Búanna, Afrikaans. Þetta var tungumál sem blökkumenn notuðu ekki og litu á sem kúgunartæki. Nemendum var kennt á Afrikaans sem mörg börn kunnu lítið í og kennararnir höfðu jafnvel ekki almennileg tök á málinu heldur. Forystumenn blökkumanna höfðu ítrekað óskað eftir að þessu yrði breytt, en ekkert var hlustað á sjónarmið þeirra.

16. júní gengu skólabörn í Soweto fylktu liði um götur hverfisins. Þetta átti að verða friðsamleg mótmælaganga. Við Orlando West, skammt frá heimili Nelsons Mandela, mættu mótmælendur fámennum hópi lögreglumanna. Mótmælendur sungu, tóku upp steina og kölluðu "Power, power". Einhverjir úr hópnum höfðu drepið hund og kveiktu í honum fyrir framan lögreglumennina. Lögreglumennirnir sögðu eftir á að í þessu hefði falist hótun um að fara eins að með þá. Þegar annar hópur mótmælenda kom úr annarri átt með grjót í höndunum töldu lögreglumennirnir lífi sínu ógnað. Þeir hófu skothríð á skólabörnin. Nokkur féllu fyrir skotum lögreglumannanna.

"Hættu að brosa og farðu heim"

Meðal þeirra sem létust var Hector Pieterson, 13 ára drengur frá Soweto. Eldri systir hans tók þátt í mótmælunum, en hún hafði ætlast til að hann yrði heima. "Þegar átökin hófust kom ég auga á Hector þar sem hann stóð brosandi og fylgdist með mótmælunum. Ég bað hann að hætta að brosa og koma sér heim. Þá kváðu við skothvellir. Við leituðum bæði skjóls, en ég missti sjónar á honum. Þegar hlé varð á skothríðinni leit ég upp. Ég kom ekki auga á Hector, en tók hins vegar eftir skóm á götunni og svo áttaði ég mig á að þetta voru skórnir hans Hectors. Svo sá ég ungan mann koma hlaupandi á móti mér. Hann hélt á Hector sem hafði orði fyrir skoti."

Þannig lýsti Antoinette, systir Hectors, því sem gerðist. Ungi maðurinn sem tók Hector upp af götunni og reyndi að koma honum til læknis hét Mbuyisa Makhubu. Ljósmyndarinn Sam Nzima tók mynd af Hector, systur hans og Mbuyisa, en hún sýndi betur en mörg orð hvað gerðist í Soweto þennan dag. Þegar Hector kom á sjúkrahús var hann látinn. Hann hafði fengið skot í gegnum hálsinn.

Næstu vikur og mánuði ríkti stríðsástand í Soweto. Ekki er vitað til fulls hve margir létust í átökunum. Margir hurfu og því er ekkert vitað um örlög þeirra, en talið er að 700-1.200 blökkumenn hafi verið drepnir þá mánuði sem uppreisnin stóð yfir.

Mbuyisa Makhubu var einn þeirra sem flúðu en hann var einn af þeim sem skipulögðu mótmælin. Lögreglan lagði mikla áherslu á að handsama hann, en hún hélt því fram að ljósmyndin sem Nzima tók hefði verið sviðsett. Makhubu neyddist til að flýja land. Hann hvarf í Nígeríu árið 1978.

En það voru fleiri en blökkumenn sem voru drepnir í átökunum. Eftir að lögreglan hóf skothríð var engum hvítum manni vært í Soweto. Tveir menn náðu ekki í tíma að hafa sig á brott og voru drepnir af hópi blökkumanna. Annar þeirra var læknir, en stuttu eftir að hann var drepinn leituðu blökkumenn á stofuna hans eftir læknishjálp.

Stjórnvöld sögðu að 23 hefðu látist þennan dag. Heimamenn í Soweto sögðu hins vegar að 200 látnir væri nærri lagi, stór hluti þeirra börn.

Dagana á eftir fóru lögreglumenn í grænum bílum um götur Soweto og skutu fyrirvaralaust á þá sem áttu leið hjá.

Fyrst Mandela gat það þá hlýt ég að geta það líka

Árið 2001 var opnað safn til minningar um atburðina í Soweto. Safnið er nefnt í höfuðið á Hector Pieterson. Hann er tákn allra þeirra sem létust í uppreisninni. Safnið, sem stendur þar sem lögreglumennirnir stóðu þegar þeir skutu á skólabörnin, er áhrifamikið tákn fyrir baráttu blökkumanna fyrir frelsi. Þar eru myndir af uppreisninni og lýsingar vitna á því sem gerðist. Á sjónvarpsskjám er hægt að horfa á viðtöl við lögreglumenn sem skutu á mannfjöldann, viðtöl við Steve Biko og fleiri leiðtoga blökkumanna.

Antoinette Pieterson átti lengi vel erfitt með að tala um myndina af deyjandi bróður sínum. Í dag er hún leiðsögumaður á safninu. Hún sagði í samtali við BBC í gærkvöldi, að fyrst Mandela gat komist í gegnum 27 ára fangelsisvist á Robbin-eyju án þess að verða bitur eða reiður hlyti hún að geta yfirunnið sorgina og horft á myndina án þess að klökkna.

Í mörg ár sat móðir Mbuyisa Makhubu fyrir framan safnið og seldi póstkort og alls kyns smávarning.

Á torgi fyrir framan safnið er myndin sem Sam Nzima tók af syni hennar með Hector Pieterson í fanginu. Þessi mynd birtist í fjölmiðlum um allan heim, en hún átti stóran þátt í að vekja heimsbyggðina til vitundar um þau skelfilegu mannréttindabrot sem verið var að fremja í S-Afríku.

Mbuyisa Makhubu heldur á hinum deyjandi Hector Pieterson. Örvæntingin skín …
Mbuyisa Makhubu heldur á hinum deyjandi Hector Pieterson. Örvæntingin skín úr svip Antoinette, systur Hectors. Hector Pieterson var aðeins 13 ára þegar hann lést. Sam Nzima
Kerti brenna við hús Nelson Mandela í Soweto. Húsið er …
Kerti brenna við hús Nelson Mandela í Soweto. Húsið er núna safn þar sem margir leggja leið sína. Ekki langt frá húsi Mandela er safnið sem helgað er minningu Hectors Pietersons og annarra fórnarlamba Soweto-uppreisnarinnar. ALEXANDER JOE
S-Afríkubúar sýna gleiði og sorg með því að syngja og …
S-Afríkubúar sýna gleiði og sorg með því að syngja og dansa. Myndin er tekin við hús Mandela í Soweto. ALEXANDER JOE
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert