Merkel krefst afnáms mótmælalaga

Angela Merkel
Angela Merkel AFP

Angela Merkel, Þýskalandskanslari, krefst þess að Viktor Yanukovych, forseti Úkraínu, afnemi harðneskjuleg lög sem banna mótmæli í landinu. Lögin hafa leitt til átaka milli lögreglu og mótmælenda í Kænugarði, höfuðborg Úkraínu.

Í símtali milli þjóðaleiðtoganna lagði kanslarinn fast að Yanukovych að hefja viðræður við mótmælendur og afnema lögin, sem hún segir að dragi úr borgaralegum réttindum.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert