Skotárás í Kansas

A.m.k. þrír létust í skotárás í Kansas í Bandaríkjunum í dag. Árásin átti sér stað í samkomustað gyðinga. Einn maður hefur verið handtekinn. Fjölmiðlar í Bandaríkjunum segja að hann hafi hrópað „Heil Hitler“ þegar hann var leiddur á brott í handjárnum.

Einn þeirra sem létust var skotinn til bana á bílastæði fyrir utan samkomuhús gyðinga. Annar maður var skotinn inn í húsinu. Þar inni voru um 75 manns, aðallega börn. Öngþveiti myndaðist þegar foreldrar börðust við að koma börnum sínum í skjól.

Sá sem er grunaður um verknaðinn var handtekinn um eina mílu frá samkomuhúsinu.

Frétt CBS-news

Skotárásin átti sér stað í samkomuhúsi gyðinga við Overland Park …
Skotárásin átti sér stað í samkomuhúsi gyðinga við Overland Park í Kansas.
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert