Í dag fara fram forsetakosningar í Norður-Afríkuríkinu Alsír. Talið er líklegt að núverandi forseti landsins, hinn 77 ára gamli Abdelaziz Bouteflika, hljóti endurkjör. Hann hefur verið forseti landsins frá árinu 1999.
Öfugt við nágrannaríkin í Norður-Afríku kom Arabíska vorið aldrei til Alsír. Einhver mótmæli brutust vissulega út en þau náðu aldrei að magnast upp líkt og í nágrannalöndunum. Andstæðingar Bouteflika hafa í kosningabaráttunni sakað hann um mikla spillingu.
Alls eru sex í framboði í kosningunum. Bouteflika hefur verið afar lítið áberandi í kosningabaráttunni en þrátt fyrir það spá menn honum stórsigri. Einhverjir hafa lýst yfir áhyggjum af heilsu Bouteflika eftir að hann fékk hjartaáfall í fyrra. Eftir hjartaáfallið hefur hann verið mun minna áberandi en hann áður var.