Lék sér með bensín og lést

AFP

Talið er að sjö ára breskur drengur, sem lést eftir að hljóta brunasár um nær allan líkamann, hafi verið að leika sér með bensín með þeim afleiðingum að um 80% líkama hans brenndust.

Atvikið átti sér stað á föstudag og lést drengurinn á sjúkrahúsi skömmu síðar.

Litli drengurinn hét Preston og í frétt Sky segir að skömmu áður en slysið varð sé talið að hópur barna sem ver að leik með Preston hafi tekið brúsa af bensíni af pallbíl. Slysið verður nú rannsakað. Einn ættingi drengsins segir að krakkarnir hafi verið að leika sér er eldur komst í föt Prestons.

Sjónarvottur segist hafa heyrt öskur. Föt drengsins hafi verið alelda og viðstaddir hafi reynt að slökkva í þeim.

Frétt Sky.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert