Tveir páfar teknir í dýrlingatölu

Fjöldi fólks frá öllum heimshornum er samankominn í messu í Vatíkaninu í morgun þar sem Frans páfi mun taka Jóhannes Pál páfa II og Jóhannes páfa XXIII í dýrlingatölu.

Þúsundir eru einnig saman komnar á Péturstorginu og margir veifa fána Póllands, heimalands Jóhannesar Páls páfa II. Messan hófst klukkan 8:00 að íslenskum tíma. Viðstaddur er forveri Frans páfa, Benedikt XVI, og hundruð biskupa og kardínála.

Þetta er í fyrsta sinn sem páfi og fyrrverandi páfi taka saman þátt í messu og í fyrsta sinn að sama skapi sem tveir páfar eru teknir í dýrlingatölu sama daginn.

Frans páfi við messuna í morgun.
Frans páfi við messuna í morgun. AFP
AFP
AFP
AFP
mbl.is

Bloggað um fréttina

Fleira áhugavert
Fleira áhugavert