11 ára nauðgað í refsingarskyni

AFP

Lögregla í austurhluta Indlands handtók tvo í dag í tengslum við nauðgun á ellefu ára gamalli stúlku. Svo virðist sem einn úr öldungaráði þorpsins hafi fyrirskipað að henn yrði nauðgað til þess að refsa bróður hennar.

Að sögn lögreglu sýnir læknisrannsókn að ásakanir um að stúlkunni hafi verið nauðgað á mánudag séu sannar. Unnið er að rannsókn málsins.

Anurag Gupta, talsmaður lögreglunnar í Jharkhand ríki, segir að bróðir stúlkunnar sé sakaður um að hafi reynt að beita nágrannakonu kynferðislegu ofbeldi.

Þegar konan og eiginmaður hennar kvörtuðu undan áreiti nágrannans við öldungaráð þorpsins lagði einn þeirra til að eiginmaðurinn myndi í refsingarskyni annað hvort nauðga systur eða dóttur þess sem hafði áreitt konuna. 

Allir stóðu hjá og gerðu ekki neitt til að aðstoða stúlkuna

„Þeir fóru með hana inn í skóg og nauðguðu henni,“ segir móðir fórnarlambsins í viðtali við CNN-IBN.  „Allir þorpsbúar komu þangað og stóðu hjá án þess að gera nokkuð. Við grétum og báðum um hjálp en enginn gerði neitt.“

Talsmaður lögreglunnar segir að eiginmaðurinn og sá sem lagði til að stúlkunni yrði nauðgað hafi verið handteknir í morgun.

Bróðir stúlkunnar var einnig handtekinn fyrir að hafa reynt að beita nágrannakonuna kynferðislegu ofbeldi.

Stúlkan sem var nauðgað tilheyrir Gulgulia stétt sem er ein lægsta stéttin á Indlandi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert