Bandaríska klappstýran Rachel Canning, sem komst í heimsfréttirnar í vetur fyrir að fara í mál við foreldra sína eftir að þeir neituðu að borga skólagjöld hennar, vill nú fá nálgunarbann á kærasta sinn. Canning hélt því fram á sínum tíma að foreldrar hennar hefðu vísað henni á dyr, m.a. vegna þess að hún neitaði að hætta með kærastanum - sem hún vill nú fá nálgunarbann á.
Cannig er aðeins átján ára. Hún sakar kærastann um að hafa tekið sig kverkataki á götu úti, segir í frétt Huffington Post um málið.
Canning hætti við að lögsækja foreldra sína í vetur eftir að málið komst í hámæli í fjölmiðlum.
Frétt mbl.is:
Klappstýra í mál við foreldra sína