Dómstóll í Kamerún dæmdi í gær fjórtan meðlimi úr röðum íslömsku hryðjuverkasamtakanna Boko-Haram í tíu til tuttugu ára fangelsi. Mennirnir, sem voru handteknir í marsmánuði fyrir vopnaburð, viðurkenndu fyrir dómstólnum að þeir væru meðlimir samtakanna alræmdu.
Þeir höfðu bæði verið ákærðir fyrir ólöglegan vopnaburð og fyrir að undirbúa hryðjuverkaárás, að því er segir í frétt AFP. Meðlimir úr röðum samtakanna hafa á undanförnum mánuðum látið til skarar skríða í mörgum Afríkuríkjum, gert skotárásir á lögreglustöðvar, rænt börnum og myrt þúsundir manna, svo eitthvað sé nefnt.
Samtökin Boko Haram voru stofnuð í Nígeríu árið 2002 og er markmið þeirra að berjast gegn vestrænum áhrifum og menntun í landinu.