Fimm manns féllu og átta slösuðust alvarlega í sprengjuárás á kaþólskri kirkju í borginni Kano í norðurhluta Nígeríu í kvöld. Tveimur sprengjum var varpað á kirkjuna, að sögn lögregluyfirvalda í borginni.
Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni en lögreglan segir að liðsmenn úr röðum íslömsku öfgasamtakanna Boko Haram liggi undir grun. Þeir hafa borið ábyrgð á fjölmörgum sprengjuárásum í norðurhluta landsins á undanförnum mánuðum.
Samtökin Boko Haram voru stofnuð í Nígeríu árið 2002 og er markmið þeirra að berjast gegn vestrænum áhrifum og menntun í landinu.