Rannsókn á flaki MH17 hefur tafist vegna bardaga á svæðinu en sérfræðingar fengu í dag loks óheftan aðgang. Hætta er þó á svæðinu og sprengingar í nágrenninu tíðar.
Herinn í Úkraínu tilkynnti í morgun að hlé yrði gert á tilraunum til að bola burt aðskilnaðarsinnum, hlynntum Rússum, í austurhluta landsins í dag. Með þessu var reynt að auðvelda sérfræðingum aðgang að flakinu.
Rannsóknarmennirnir frá Hollandi og Ástralíu ásamt ásamt eftirlitsmönnum ÖSE fóru frá borginni Donetsk í morgun í þremur hvítum jeppum. Ferðin fram og til baka er um 500 kílómetra löng þrátt fyrir að flakið sé einungis í um sextíu kílómetra fjarlægð vegna krókaleiða sem þarf að fara vegna átakanna á svæðinu.
Hættan á svæðinu er mikil og flestir ökumenn hafa sett upp einhvers konar merki í rúður bifreiða sinna til þess að komast hjá árás. Annað er settur bréfmiði í framrúðuna þar sem einfaldlega stendur „börn“ eða hvítur klútur hengdur út um gluggann.
Rannsóknarteymið komst að flakinu og hafa úkraínsk stjórnvöld heitið þeir fái frið til þess að vinna á næstu dögum. Enn eru ófundnar líkamsleifar um hundrað manna en vonir standa til að hægt verði að finna þá á næstu dögum.